Morgunblaðið - 18.03.1983, Síða 7
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
7
AÐAL-
FUNDUR
félagsins veröur haldinn í Átthagasal, Hótel Sögu
mánudaginn 28. marz kl. 20.30.
Dagskrá:
Venjuleg aöalfundarstörf.
Tekin ákvöröun um byggingaframkvæmdir aö félags-
miöstöö aö Víðivöllum.
Reikningar félagsins liggja frammi á skrifstofu félags-
ins dagana 21.—25. marz kl. 13—18.
Félagar eru minntir á aö greiöa ársgjöld fyrir aöal-
fund.
Árshátíö félagsins veröur aö Hótel Sögu föstudaginn
25. marz.
Hestamannafélagiö Fókur.
Betri sjón án gleraugna
— Einkatímar —
Viltu kasta í burtu gleraugunum
eða minnsta kosti minnka þann
tima sem þú notar þau? Reyndu þá
VISIONETICS. Visionetics tengir
saman augnæfingar dr. W.H. Bates
við aðferðir í hugleiðslu og sjálfsefj-
un ásamt almennum líkamsæfing-
um úr Hathayoga. Þetta heildræna
augnæfingarkerfi styrkir augn-
vöðvana, dregur úr vöðva-
spennu, eykur orkumagn líkam-
ans og stuölar aö aukinni blóðrás
og almennri slökun. Þú getur bætt.
verulega sjónina á aðeins tveimur
mánuðum, hvort sem þú þjáist af
nærsýni, fjarsýni eða sjónskekkju.
Kennari: Guðmundur S. Jónasson.
Tími: Tvisvar í viku í átta vikur 1 klst. í senn.
Verö: 3.520 kr. Lesefni og slökunarkassetta innifalin.
Tímapantanir: Fræðslumiöstöðin Miðgarður Bprugata 11
síma: (91)12980 frá kl. 10—16 og 19—22.
/V1ÐG4RÐUR
TS'íQamdlkadulinn
■ rni
s^-tetti(ýotu 12 - 1S
Citroön Vím 1979
Grnnn. Ekinn 38 þús. km. Snjödekk +
sumardekk. Verö 80 þús.
Galand 1600 G.L. Station
Steingrár 'sanz). Ekinn 50 þús. km.
Fallegur bíll. Verö kr. 150 þús. Sklptl
möguleg, jafnvel á ódýrarl bíl.
BMW 320 1981
Drapplitaöur. Ekinn 18 þús. km. 5 gíra
(6 cyl.) Sportfelgur. Aukahlutir. Verð
kr. 250 þús. (Skipti möguleg á BMW
’82—’83.).
Volvo 244 G.L. 1980
Brúnsanzeraöur. Eklnn 42 þús. km.
Sjálfskiptur m/öllu. Verö kr. 230 þús.
Daihatsu Charade 1980
Drapplitaöur. Ekinn 57 þús. km. Varö
110 þús. (Útb. kr. 60 þús.) Eftirstöðv-
ar 6—7 mán.
ifc
Mazda 929 L1980
Grænsanz. Eklnn 50 þ. km. Sjáltsklptur
Verð kr. 145 þús. Sklptl á nýrrl bll (s)élf-
sklptum).
Mazda 323 (1300) 1982
Blásanz. ekinn 15 þ. km. Verö kr. 160 þús.
(Skipti ath. á ódýrari).
Range Rover 1976
DrappWur eklnn 120 km. Dekurbfll I aér-
flokkl. Verö 250 bút
Honda Prelude 1980
Rauöur (sanz.) Eklnn 36 pus. km. Sjálfakipt-
ur með sóllúgu. Snjódekk og sumardekk.
Gulltallegur sportbíll. Verð kr. 180 þús.
Formaður
biðlar til
formanns
Fundur félaga Svavars
með ungum framsóknar-
mönnum opinberaöi „kær-
leika“ þann sem er á milli
formanna Alþýðubanda-
lags og Framsóknarflokks.
„I*að eru menn, eins og
t.d. formaður Framsóknar-
flokksins, Steingrímur
Hermannsson,“ sagði fé-
lagi Svavar, „sem hafa lagt
sig fram um aö treysta inn-
viöi ríkisstjórnarinnar, og
er ekki nema gott eitt um
það að segja, en utanríkls-
ráðherra hefur á hinn bóg-
inn lagt sig fram um að
finna ágreiningsefni við
okkur í Alþýðubandalag-
inu, og hefur það nú ekki
verið til þess fallið aö
treysta samstarfið."
Sem sé: eftirgefanleiki
Steingríms og vinnukonu-
hlutverk hans gagnvart
Kremlverjum Alþýðu-
bandalagsins í rikisstjórn,
er eiginleiki, sem félagi
Svavar kann vel að meta.
Tilburðir Ólafs Jóhannes-
sonar til sjálfstaeðs mats í
fagráöuneyti hans jafn-
gilda hins vegar pólitískri
Síberíuvist í huga Svavars.
Minnihluta-
sjónarmið í
Framsóknar-
flokknum
Haraldur Ólafsson, dós-
ent, ritar grein í Tímann í
gær, og segir m.a.:
„Ég hefí frá fyrstu tið
haft efasemdir um hve
heppilegt þetta stjórnar-
mynstur hefur verið. Því
hefi ég lýst áður og endur-
tek aöeins, að fátt er nauð-
synlegra en viss stöðug-
leiki, og með klofningi
Sjálfstæðisflokksins var
hlaöið undir óstöðugleika
innan flokkanna allra.
Flokkarnir eru hornsteinn
lýöra'ðis og þingræðis
hvort sem okkur líkar bet-
ur eða verr, og sá illi hugur
sem fylgdi í kjölfar stjórn-
armyndunarinnar 8. febrú-
ar fyrir þremur árum hefur
eitrað hið pólitíska líf í
landinu meir en nokkurn
Svavar GeiUaon, formaður Alþýóubandalassins á fundi með
ungum framtóknarmönnum:
Dtilokar stjórnarsamstarf
vie sjAlfstæðisflokkinnn
Þeir stefna að áfram-
— en ætlar
ákveðinn
i næstu
rikisstjórn
haldandi vinstri stjorn!
Ungir framsóknarmenn buðu Svavari Gestssyni, formanni Al-
þýðubandalagsins, til sín, er þeir ræddu stjórnarsamstarf aö
kosningum loknum. Timinn, málgagn Framsóknarflokksins, birtir
síöan fagnandi frásögn undir tveggja hæöa og fimm dálka fyrir-
sögn, þar sem Svavar Gestsson útilokar með öllu stjórnarsam-
starf viö Sjálfstæðisflokkinn! Þessi orð Svavars — og viðbrögð
Tímans — er ekki hægt að skýra nema á einn veg: að þessir tveir
flokkar, Alþýðubandalag og Framsóknarflokkur, sem bera
ábyrgö á stjórn landsins allar götur síöan 1978, með viðblasandi
árangri í þjóöarbúskapnum, hyggi á áframhaldandi stjórnar-
samstarf eftir kosningar, fái þeir til þess kjörfylgi. Þessi orð
Svavars, í túlkun Tímans, hljóta aö veröa meginatriði í kosn-
ingabaráttunni.
gat órað fyrir."
Þetta eru athyglisverð
eftirmæli ríkisstjórnar,
sem Framsóknarflokkur-
inn, ekki sízt Steingrímur
Hermannsson, ber póli-
tíska ábyrgð á, sem og
þeim viðblasandi stað-
reyndum í þjóðarbúskapn-
um, er hún skilur eftir sig;
ekki sízt þegar þess er gætt
að sá sem talar er einn af
skarpskyggnari og hógvær-
ari forystumönnum Fram-
sóknarflokksins.
Tíminn lýsir
yinnubrögðum
Hjörleifs
Guttormssonar
Eftirfarandi klausur eru
úr forystugrein Tímans í
gær:
I
„Fjögurra ára árangurs-
lausar tilraunir Hjörleifs
Guttormssonar til að fá
orkuverðið hækkað sýna
einnig, að álhringurinn er
ekkert lamb að leika við.
Það hefur að vísu styrkt
aðstöðu hringsins, að
Hjörleifur hefur eytt mest-
um tímanum í þjark um
skattamálin í stað þess að
láta þau ganga til dóms.
Krafan um hækkun orku-
verðsins hefur orðið nær
alveg hornreka — til mik-
illar gleði fyrir álhringinn.
Á undanförnum árum
hefur því verið haldið fram
hér í blaöinu. að vænleg-
asta leiðin til að ná árangri
í álmálinu, væri að koma á
þjóðareiningu um stefnuna
í því, lflkt og í landhelgis-
málinu. Hjörleifur Gutt-
ormsson hefur lítt léð því
eyra.
Á síðastliönu hausti voru
a.m.k. þrír stjórnmála-
flokkar orðnir sammála
um grundvöll að sam-
komulagi við álhringinn,
sem byggðist á þvi aö orku-
veröið hækkaði strax um
20%, en tíminn fram til 1.
aprfl yrði notaður til að
semja um frckari hækkun.
Hjörleifur Guttormsson
hafnaði þessari leið og
leiddi það til þess að áí-
nefndin þáverandi leystist
upp, en það breytti raunar
ekki miklu, því að Hjörleif-
ur hafði lítiö eða ekkert til-
lit tekið til hennar.“
II
„Næsta skref Hjörleifs
var að leggja til í ríkis-
stjórninni aö viðræðum
yrði hætt og gripið til ein-
hliða aðgerða. Framsókn-
armenn og sjálfstæðis-
menn í ríkisstjórninni
töldu þetta ekki ráölegt
meðan ekki hefði verið
reynt til þrautar aö ná sam-
komulagi um orkuverðið.
Steingrímur Hermanns-
son lagði til í ríkisstjórn-
inni í samræmi við þetta að
skipuð yrði ný nefnd til við-
ræðna við álhringinn og
yrði hún skipuö fulltrúum
allra flokka.
I*e.ssari tilraun til þjóðar-
einingar um málið hafnaði
Hjörleifur alveg. Hann
rseddi ekki neitt frekar við
aðra um málið. í stað þess
að reyna að vinna að ein-
ingu um það, lagöi hann
ásamt öðrum þingmönnum
Alþýðubandalagsins í neðri
deild fram frumvarp um
einhliöa aðgerðir.
í staö þess að vinna að
einingu og samstöðu um
álmálið, steig Hjörleifur
þaö óafsakanlega skref að
gera það að flokksmáli og
kosningamáli.
Sennilega hafa fáir at-
burðir glatt ráðamenn ál-
hringsins meira en þessi
tilraun Hjörleifs til aö gera
álmálið að pólitísku deilu-
máli innanlands.**
WAGNER-
sjálfstýringar
Wagner-sjálfstýringar,
komplett meö dælusettum
12 og 24 volt, kompás og
fjarstýringum fram á dekk,
ef óskað er, fyrir allar
stæröir fiskiskipa og allt
niður í smá trillur. Sjálf-
stýringarnar eru traustar
og öruggar og auöveldar í
uppsetningu. Höfum einn-
ig á lager flestar stæröir
vökvastýrisvéla.
Hagstætt verö og
greíösluskilmálar.
Atlas hf
Armúli 7 — Sími 26755.
Pósthólf 493, Reykjavík
Kynntu þér
Vörumarkaðsverð
— það borgar sig
Strásykur 1 kg. kr. 11.90.-
Hveiti Pillsbury's Best 5 Ibs. kr. 35.60.-
Hveiti Gluten Blue Star 2 kg. kr. 25.60,-
Molasykur Sirkku 1. kg. kr. 24.75.-
Flórsykur Dansukker hálft kg. kr. 11.65.-
Púðursykur Dansukker hálft kg. kr. 11.20.-
Kandíssykur Candko hálft kg. 25.50.-
Kjúklingar 5 stk. kr. 96.00.- kg.
Dilkakjöt í heilum skrokkum á gamla verðinu.
Opið til kl. 8 í kvöld og til hádegis á
morgun.
Vöruinarkaðurinn hf.
Ármúla 1A. Sími 86111.