Morgunblaðið - 18.03.1983, Blaðsíða 14
AUGLYSINGASTOFA KRISTINAR HF 3 111
14
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
ný
fersR
andi:
RqRös
jógurt
aldinbragð
suðrœnna pálma
Áður óþekkt öfgasamtök
sendu bréfasprengjurnar
Buenos Aires, 17. mars. AP.
ÁÐUR óþekkt argentínsk samtök,
2. aprfl, hafa lýst á hendur sér
ábyrgð á bréfasprengjunni sem
Margaret Thatcher, forsætisráð-
herra Bretlands fékk í pósti fyrr í
vikunni. Hópurinn kveóst einnig
hafa sent bréfasprengjuna sem
barst til aðalstöóva bandaríska
flotans í Lundúnum.
Það var argentínska frétta-
stofan Diarios Y Noticias sem
greindi frá þessu. Sagði frétta-
stofan, að maður sem ekki vildi
láta nafns síns getið, hefði
hringt og sagt frá þessu. Sagði
símamaðurinn að sprengjurnar
hefðu verið póstlagðar í Lund-
únum. „Við eigum nokkra
stuðningsmenn og meðlimi
þar,“ sagði rðddin. Sagði tals-
maðurinn jafnframt, að 2. apríl,
hefði mörg sprengjutilræði á
prjónunum og hópurinn myndi
ekki linna látunum fyrr en Arg-
entína hefði endurheimt Mal-
vinas-eyjarnar, en svo nefna
Argentínumenn Falklandseyj-
ar. Nafn samtakanna nýju er
dregið af deginum sem argent-
ínskar hersveitir gengu á land á
Falklandseyjum á síðasta ári, 2.
apríl.
Símaröddin ráðlagði Bretum
öllum að vera á varðbergi 2.
apríl næstkomandi, því samtök-
in myndu minnast dagsins með
„viðeigandi hætti".
Unita-skæruliðar halda
21 tékknesku barni
Prag, 17. tnars. AP.
RUDE Pravo, málgagn tékkneska Kommúnistaflokksins, sagði í gær,
að 21 hinna tékknesku gísla í höndum Unita-skæruliðanna í Angóla,
væru börn. Skæruliðar frá Unita handtóku alls 64 Tékka og 20
Portúgala er þeir gerðu árás á raforkuver fyrr í vikunni.
Rude Pravo sagði að þrjú tékkneskra ráðgjafa.
barnanna væru á aldrinum
3—5 ára og átta til viðbótar
væru 6—10 ára gömul. Hin
væru táningar á yngsta aldri.
Þá væru í hópnum einn kven-
læknir, tvær hjúkrunarkonur
og 12 aðrar konur, eiginkonur
Unita, sem nýtur stuðnings
vesturlanda, sagði í fréttatil-
kynningu í gær, að gíslunum
yrði ekki sleppt fyrr en að
stjórnvöld í Angóla létu lausa
allmarga breska málaliða sem í
haldi eru. Tékknesk yfirvöld
hafa beðið Rauða krossinn og
Javier Perez De Cuellar, for-
seta Sameinuðu 'þjóðanna, um
aðstoð. Tékkar hafa einnig far-
ið fram á aðstoð ónefndrar
þjóðar við frelsun gíslanna.
Rude Pravo harðneitaði „ásök-
unum“ vestrænna fréttastofa,
að tékknesku ráðgjafarnir hafi
í raun verið vopnaðir tékknesk-
ir hermenn.
Lát Marinellu
Garcia staðfest
Var í hópi 22 manna, sem féllu í átökum á sunnudag
San Salvador, 17. marz. AP.
Mannréttindanefnd í El Salva-
dor hefur staðfest það, að forseti
nefndarinnar, Marianella Garcia
Villas, hafi verið drepin fyrr í þess-
ari viku á átakasvæði nærri Guz-
apa-eldfjallinu. Þá hefur varnar-
málaráðuneyti landsins skýrt frá
því, að lík Marincllu Garcia hafl
fundizt á meðal 22 líka skæruliða,
sem hefðu verið felldir, er þeir
reyndu að sitja fyrir herflokki sem
var á eftirlitsferð síðdegis á sunnu-
dag í grennd við þorpið La Ber-
muda. Það liggur rúml. 40 km fyrir
norðaustan höfuðborgina, San
Salvador.
Fyrst var talið, að lík Marin-
ellu Garcia væri lík vestur-
þýskrar blaðakonu, og var það
ekki fyrr en sl. þriðjudag, að yf-
irvöld fengu vitneskju um, af
hverjum líkið var. í yfirlýsingu
varnarmálaráðuneytisins sem
gefin var út í gær var sagt, að
skjöl með áætlunum um alþjóð-
legt fjarskiptakerfi hinna vinstri
sinnuðu uppreisnarmanna í
landinu hefðu fundizt á líkinu,
en einnig upplýsingar um
birgða- og flutningakerfi upp-
reisnarmanna og sálfræðilegar
hernaðaraðgerðir þeirra.
f yfirlýsingu, sem gefin var út
í gær, vísaði mannréttinda-
nefndin á bug þeim ásökunum
varnarmálaráðuneytisins, að
Marinella Garcia hefði gengið í
lið með skæruliðum. Aftur á
móti hefði „hún oft heimsótt
staði, þar sem íbúarnir hefðu
skýrt frá hryðjuverkum stjórn-
arhermanna". Var haft eftir
meðlimum í mannréttindanefnd-
inni, sem ekki vildu láta nafns
síns getið, að Marinella Garcia
hefði farið inn á átakasvæði í
, ■V ;;\J
Marinella Garcia Villas
grennd við eidfjallið Guazapa til
þess að kanna staðhæfingar upp-
reisnarmanna um, að svonefnd
Atlacatl-hersveit stjórnarinnar,
sem þjálfuð hefur verið af
Bandaríkjamönnum, hefði myrt
óbreytta borgara á þessu svæði í
aðgerðum gegn skæruliðum, sem
fram fóru seint í febrúar.
í yfirlýsingu mannréttinda-
nefndarinnar sagði ennfremur,
að hún væri að kanna ásakanir
um, að stjórnarherinn notaði
efnavopn í aðgerðum sínum gegn
uppreisnarmönnum í hlíðum
Guazapa-eldfjallsins. Heldur
nefndin því fram, að Marinella
hafi verið myrt ásamt 21 bónda,
sem flúið hefðu undan hernaðar-
aðgerðum stjórnarhersins. Mar-
inella Garcia hafi verið ein af
stofnendum mannréttindanefnd-
arinnar 1978, en hafi farið úr
landi 1980 og haldið til Mexikó
vegna hótana gagnvart henni.
Hún hafi snúið heim til E1
Salvador í janúar sl.
Marinella Garcia Villas var
lögfræðingur að mennt. Hún var
þingmaður fyrir Kristilega
demókrataflokkinn á Þjóðþingi
E1 Salvador frá 1974—1976, en
það er hófsamur flokkur. Hún
stofnaði síðan sérstaka hreyf-
ingu, sem hafði innan sinna vé-
banda óánægða félaga flokksins,
sem hölluðust til vinstri.
Varnarmálaráðuneytið í E1
Salvador hefur ásakað Marinellu
Garcia um að taka þátt í bardög-
um með skæruliðum og heldur
því fram, að hún hafi verið þekkt
undir heitinu: „Lucia yfirfor-
ingi“.
Stjórnin í E1 Salvador og
bandaríska sendiráðið þar halda
því ennfremur fram, að mann-
réttindanefndin komi fram fyrir
hönd svonefndrar „Lýðræðis-
legrar byltingarfylkingar", en
það er samsteypa vinstri flokka,
sem vinni saman með skærulið-
um.
Meðlimir mannréttindanefnd-
arinnar geri ekkert til þess að
dylja samúð sína með vinstri
sinnum í landinu en segjast
samt vera óháðir. Herinn hefur
sakað nefndarmenn um að
starfa sem sendiboðar fyrir
skæruliða.
i