Morgunblaðið - 18.03.1983, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MARZ 1983
19
Frá vinstri: Þórður Steingrímsson, framkvæmdastjóri Revíuleikhússins, Sig-
urbjörg Árnadóttir, sem í ssti í leikhúsráöi Alþýóuleikhússins og Ingibjörg
Guömundsdóttir, framkvæmdastjóri Gránufjelagsins fyrir framan Hafnar-
bíó.
Húsnæðisekla Alþýðuleikhússins:
Hafa augastað á
gamla Sigtúni
EKKI hefur enn tekist að finna hentugt húsnæði fyrir starfsemi Alþýðu-
leikhússins, Revíuleikhússins og Gránufjelagsins, en sem kunnugt er
missa leikhóparnir starfsaðstöðu sína þegar Hafnarbíó verður rifið 5.
aprfl nk. Þó er verið að kanna hvort unnt sé að fá sýningaraðstöðu í
gamla Sigtúni við Austurvöll.
Þetta kom m.a. fram á blaða-
mannafundi með fulltrúum leik-
hópanna sl. þriðjudag. Þar voru
einnig lagðar fram stuðningsyf-
irlýsingar frá Leiklistarsambandi
íslands, leikhússtjórum, Félagi
leiklistarnema og fjölda leikara,
við baráttu leikhópanna þriggja
um að fá viðunandi húsnæði.
„Þetta húsnæðisleysi er afar
bagalegt því að í ráði var að
frumsýna þrjár sýningar um það
leyti sem Hafnarbíó verður rifið,
sagði Sigurbjörg Árnadóttir, sem
á sæti í leikhúsráði Alþýðuleik-
hússins á fundinum. Þórður
Steingrímsson framkvæmda-
stjóri Revfuleikhússins sagði að
fulltrúar leikhópanna hefðu farið
á fund Steingríms Hermannsson-
ar samgöngumálaráðherra á
þriðjudag og farið þess á leit við
hann að fá gamla Sigtún undir
starfsemina, en þar er nú mötu-
neyti Pósts og síma til húsa.
Þórður bætti því við að Sigtún
væri ákjósanlegt til leikhúss-
starfsemi og staðsetningin góð.
Ingibjörg Guðmundsdóttir fram-
kvæmdastjóri Gránufjelagsins
sagði að reynslan hefði leitt i ljós
að ekki væri unnt að reka leikhús
í úthverfum borgarinnar sökum
lélegrar aðsóknar.
Því þyrftu leikhóparnir að leita
sér að sýningaraðstöðu í miðbæn-
um, en þar væri vissulega erfið-
leikum bundið að finna hús sem
hentugt væri undir leiklistar-
starfsemi. En leikhóparnir
treystu því að stjórnvöld mundu
koma þeim til hjálpar, enda væri
hætta á að tugir leikara misstu
atvinnuna.
Æskan
í N.I M *r« 'MJ
Febrúarblað Æskunnar
er komið!
- Frískt og skemmtilegt efní.
M.a.:
* Viötöl viö Ragnhildi Gísla og
Bubba.
* Áskrifendagetraun '83 kynnt
- glæsilegir vinningar: reiöhjól,
húsgagna- og
hljómtækjasamstæöur.
* Úrslit vinsældavals Æskunnar.
* B. áösmellnar sögur eftir Astrid
Lindgren og Mark Twain.
* Og fjölmargt annaö, girnilegt
og spennandi.
ÆSKAN
— eitthvað fyrir alla.
' Áskrifendasimi 17336 p
Starfsfólk útibús Sparisjóðs Kópavogs er: Björn Magnússon, útibússtjóri, María
Einarsdóttir, Brynja Stefnisdóttir og Ágústa Björnsdóttir.
Sparisjóður Kópavogs
flytzt í nýtt húsnæði
í DAG opnar Sparisjóður Kópavogs
útibú í verslunar- og þjónustumiðstöð-
inni að Kngihjalla 8 (Kaupgarðshús-
inu) austast í Kópavogi. Þetta er
fyrsta útibú sparisjóðsins, en hann
hefur nú starfað í 28 ár og er elsta
peningastofnunin í bænum.
í fréttatilkynningu frá Spari-
sjóðnum segir m.a.:
„í upphafi var afgreiðsla spari-
sjóðsins vestan Hafnarfjarðarveg-
ar, en er nú að Digranesvegi 10 í
miðbæ Kópavogs.
Það hefur því lengi verið áhuga-
mál forráðamanna sjóðsins að setja
á stofn afgreiðslu í austurbænum,
þar sem allur vöxtur bæjarins hef-
ur verið í þá átt, síðustu tvo ára-
tugi.
Með stofnun þessa útibús getur
sparisjóðurinn veitt austur-
bæingum aukna og bætta þjónustu
og er það von stjórnenda sjóðsins,
að Kópavogsbúar standi fast með
sinni stofnun, til hagsbóta fyrir þá
sjálfa, atvinnulífið í bænum og bæj-
arfélagið.
Útibússtjóri verður Björn Magn-
ússon en stjórn sparisjóðsins skipa:
Ólafur St. Sigurðsson, formaður,
Jósafat J. Líndal, sparisjóðsstjóri,
Richard Björgvinsson, Rannveig
Guðmundsdóttir og Pétur M. Þor-
steinsson."
Ferming
á sunnudag
Mælifellsprestakall
Ferming í Reykjakirkju sunnud.
20. mars kl. 14:
Sigurður Björn Blöndal,
Sunnuvegi 6.
Sigurður Rafn Sigmundsson,
Vindheimum.
Starri Heiðmarsson,
Lækjarbakka 13.
Helga Rós Indriðadóttir,
Hvíteyrum.
Sigrún Helga Indriðadóttir,
Alfgeirsvöllum.
íscross á Húsavík:
Fimm eiga möguleika á
íslandsmeistaratitlinum
MIKIL barátta verður um sigur í íscrossi, sem fram fer laugardaginn nk. á
Húsavík. Úrslitin þar munu líklega gera upp um hver hlýtur Islandsmeistara-
titilinn í íscrossi, en staðan í keppninni er mjög jöfn.
Forystu í keppninni hefur
Kristinn Svansson á Datsun með
27 stig, síðan koma jafnir Birgir
Bragason á Skoda RS, Magnús
Baldvinsson á BMW og Þórður
Valdimarsson á VW, allir með 20
stig. Fimmti er Jón Ragnarsson,
sem ekur Volvo 343 Turbo. Morg-
unblaðið hefur fregnað að Krist-
inn, Þórður og Jón fari allir norð-
ur og má því búast við grimmri
keppni um efstu sætin. En sunn-
anmenn sóttu ekki gull í greipar
norðanmanna í síðustu keppni,
sem fram fór fyrir norðan, náðu
aðeins fjórða sæti. Verður því
væntanlega mikil keppni á milli
landshluta í íscrossinu sem hefst
kl. 14.00.
"Ti-1
yNDAVEL
TaWM
•“Híg
k/iAtlC skyndinlysKoöarÞ0Br
S ? fbe r að
tekurðv j ^ m, - aue 0g pa npj.
atrax«Kjftr-Þ** V ..
1 v/erö vélanna s) t.2ð0 f-
Ve .T,r oSO —-- 1.600 kr-
SMENN
umboð
allt
land
UM
aus
3616'
læsibæ
82590
banka
S: 20313