Morgunblaðið - 22.03.1987, Page 51
MÖRGÚNBLÁÐIÐ, s'ÚNNUDAGÚR 22. MARz' 1987
atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna — atvinna
Getum bætt við nokkrum stúlkum á sauma-
og suðuvélar. Stórbætt kjörvið síðustu kjara-
samninga og einnig bónuskerfi sem gefur
enn betri tekjumöguleika.
Komið og ræðið við verkstjóra okkar, Ólöfu
og Ernu. Upplýsingar í síma 14085.
Vinnustaður á besta stað í bænum. Strætis-
vagnamiðstöð á Hlemmi steinsnar frá
vinnustað.
Sjóklæðagerðin hf.
Skúlagötu 51,
Reykjavík.
Leikskólinn
Hólmavík
óskar eftir að ráða forstöðumann og fóstru
frá 1. maí nk. Um er að ræða 75% starf í
báðum tilfellum. Umsóknarfrestur er til 31.
mars 1987. Nánari upplýsingar gefur sveitar-
stjóri í síma 95-3193.
Sveitarstjóri Hólmavíkur.
PÓST- OG SlMAMÁLASTOFNUNIN
óskar að ráða fólk til bréfberastarfa hálfan
daginn í Reykjavík.
Upplýsingar hjá póstmeistara og hjá útibús-
stjórum pósthúsanna.
Sumarvinna
Kona um fertugt með stálpað barn óskar
eftir vinnu úti á landi frá 1. júní til 1. sept.
Góð starfsreynsla í barnagæslu og öðrum
störfum. Meðmæli geta fylgt.
Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl. merkt:
„P - 2112“.
Viðskiptafræðinemi
á 3. ári óskar eftir áhugaverðu starfi nk.
sumar. Hlutastarf með námi næsta vetur
kemur til greina.
Vinsamlegast leggið inn nafn og símanúmer
á auglýsingadeild Mbl. merkt: „V — 901“.
Matreiðslumaður
Vanur matreiðslumaður með 15 ára starfs-
reynslu óskar eftir starfi í sumar frá ca
1. júní til 1. september. Margt kemur til
greina hvar á landinu sem er.
Tilboð merkt: „M — 585" sendist inn á aug-
lýsingdeild Mbl. fyrir 31. mars.
Rannsóknastörf
Rannsóknastofnun í Reykjavík óskar eftir
líffræðingi eða lífefnafræðingi til blóðrann-
sókna. Framtíðarstarf.
Uppl. um menntun og fyrri störf skulu sendar
á auglýsingadeild Mbl. merktar: „R — 817“
fyrir 25. mars 1987.
Laus staða
Staða starfsmanns við símavörslu er laus til
umsóknar. Laun skv. launakerfi ríkisins.
Umsóknir er greini frá menntun og fyrri störf-
um sendist undirrituðum fyrir 31. mars 1987.
Bæjarfógetinn í Kópavogi
Apótek
Lyfjatæknir eða starfsmaður vanur vinnu í
apóteki óskast til starfa í Garðs Apóteki allan
daginn eða hálfan (eftir hádegi).
Upplýsingar um aldur og fyrri störf óskast
sendar auglýsingadeild Mbl. merktar: „Apó-
tek - 2113“.
Tölvur
— þjónusta
★ Öflugt tölvufyrirtæki
★ Starfsmaðurinn
þarf að hafa þekkingu, reynslu og áhuga á
PC vél- og hugbúnaði. Hann þarf að leggja
metnað sinn í að veita viðskiptavinum góða
þjónustu jafnframt því að vera góður starfs-
félagi. Góð enskukunnátta og stúdentspróf
skilyrði.
★ Starfið
Felur í sér þjónustu, ráðgjöf og sölu í tengsl-
um við PC vél- og hugbúnað. Góð starfsað-
staða hjá traustu fyrirtæki. Laust strax.
Nánari upplýsingar veitir Holger Torp.
Umsóknarfrestur til 30. þ.m.
Starfsmannastjórnun
Ráðningaþjónusta
FRum
Sundaborg 1-104 Reykjavík - Símar 681888 og 681837
Afgreiðslustörf
Óskum að ráða nú þegar duglegan og reglu-
saman starfskraft til afgreiðslustarfa í hálfs
dags starf (kl. 13.00-17.00).
Upplýsingar um aldur og fyrri störf sendist
auglýsingadeild Mbl. fyrir 25. mars nk. merkt:
„Þ - 5124".
Framkvæmdastjóri
Eitt stærsta fyrirtæki landsins á sviði niður-
lagningar og niðursuðu sjávarafurða, stað-
sett á Norðurlandi, óskar að ráða
framkvæmdastjóra.
Leitað er eftir manni með viðskiptamenntun,
sem á auðvelt með að starfa sjálfstætt og
hefur áhuga og getu til að takast á við marg-
vísleg krefjandi verkefni.
Æskilegt er að viðkomandi geti hafið störf
sem fyrst.
Með allar umsóknir verður farið sem trúnað-
armál.
Umsóknir sendist til Endurskoðunarmið-
stöðvarinnar hf. N. Manscher, c/o Björn St.
Haraldsson, löggiltur endurskoðandi, 640
Húsavík. Hann veitireinnig nánari upplýsing-
ar í síma 96-41865.
EndurskoÓunar- Höfðabakki 9
mióstnóin hf Pósthoif 10094
11IIUÖIUUIIIIII. 130 REYKJAVIK
N.Manscher
Afgreiðslumaður
Stafsmaður óskast í vöruafgreiðslu.
Starfið felur í sér m.a. pökkun á vöru, útsend-
ingar, frágangi fylgibréfa o.fl.
Við leitum að frískum manni á góðum aldri.
Þarf að hafa bílpróf.
Umsóknareyðublöð fást hjá starfsmanna-
stjóra er veitir upplýsingar.
$
SAMBAND ÍSL. SAM VINNUFÉLAGA
STARFSMANNAHALD
Hótelstjóri
Hótel Bifröst
Við auglýsum eftir hótelstjóra á Hótel Bifröst
í Borgarfirði, sem starfrækt er í júní, júlí og
ágúst.
Ennfremur óskum við eftir matreiðslumanni.
Umsóknir með upplýsingum um menntun og
fyrri störf óskast sendar til auglýsingadeildar
Mbl. fyrir 1. apríl merktar: „Bifröst — 586“.
Farið verður með allar umsóknir sem trúnað-
armál.
Samvinnuferðir-Landsýn hf.
Trésmiði vantar
Óskum að ráða trésmiði til starfa sem fyrst.
Allar nánari upplýsingar gefnar í síma
97-1700.
Hlöflum, Fellahreppi.
701 Egils8taðir.
Trésmiðja
Fljótsdalshéraðshf.
^ 97-1329
^ 97-1450
Vinnuveitendur
Ferskfiskmat ríkismats sjávarafurða var lagt
niður með lögum frá Alþingi núna um ára-
mót. Vegna þessa eru starfsmenn á lausu
sem eru:
• Vanir að vinna sjálfstætt.
• Hafa langa reynslu að baki í sjávarút-
vegi.
• Búa yfir sérþekkingu á sviði fiskvinnslu.
• Hafa mikla starfsreynslu.
Hafir þú áhuga á slíkum starfsmönnum í
vinnu hjá þér hafðu samband við okkur í síma
13866 eða 27533. Margt kemur til greina.
Menn á lausu m.a. í Vestmannaeyjum,
Reykjavík, Akranesi, Snæfellsnesi og Akureyri.
Reykjavík, 20. mars 1987,
Vinnumiðlun ríkisimats sjávarafurða.