Morgunblaðið - 16.06.1988, Síða 51
88et ivtui .31 flUOAtnJTMMH .OIQAJaVIUOHOM
05
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 16. JÚNÍ 1988
51
ósnortinn af takmörkunum, laus
undan karma og löngunum. — I
Isvara, gúrudevanum, er sú þekk-
ing fullkomin, sem er aðeins fræ-
korn í öðrum. — ísvara, gúrudev-
inn, óháður tímatakmörkunum, er
fræðari jafnvel hinna fornu fræð-
ara. — Máttarorð ísvaris er aum
(eða óm). Það er pranava.“ (Sútrur
23-27.)
Guðsbirting Vasúdevas
Visjnú, sem er Guð kærleikans
meðal Indveija, heitir öðru nafni
Vasúdeva. Hægt er að sjá myndir
af þessum guðdómi ásamt land-
varnarmanni ísvara, Skanda að
nafni, á myntum frá Baktríu, sem
eftirmenn Alexanders mikla létu
slá. Þær hugmyndir komu fram
meðal málfræðinga á fyrri hluta
þessarar aldar, að orðin Vasú og
Vísi væri rótarskyld, og orðið Vísi-
Goti merkti því „hinn hrausti Goti“,
en ekki Vestur-Goti, eins og sagt
er í sögubókum. Sé þetta rétt, er
hér um að ræða enn eina staðfest-
ingu þess, að skýring eigi fullan
rétt á sér, sem tengir þessi orð við
hinn hrausta Alföður, þ.e. Is.
Guðsbirtingu Vasúdevas er best
lýst í Bhagavad-Gita, eða Hávamál-
um Indíalands. „Þá er Krishna,
höfundur yoga, hafði þetta mælt,
birtist hann, konungur í hinni æðstu
guðdómsmynd sinni. Hann birtist
sem Ishvara. — Þar gat að líta
marga munna og mörg augu,
marga hluti furðulega, margvíslegt
guðdómlegt skraut og margvísleg
guðdómleg vopn á lofti. — Hinn
dýrðlegi og eilífi drottinn, er hefir
auglit á alla vegu, hafði á sér guð-
rænar hálsfestar. Hann var og
skrýddur guðrænum skrúða og
smurður guðrænum ilmsmyrslum.
— Það eitt myndi líkjast að nokkru
reginljóma þeim, er stóð af hinum
heilaga anda, ef þúsund sólna ljómi
lýsti í senn á himni. — Sá þá Aij-
úna alheim allan í líkama þess guðs,
er ræður yfir öllum guðum. Hann
sá og verumar greinast í sveitir
margar. — varð þá Aijúna gagntek-
inn undrun. Hárin risu á höfði hon-
um. Hann laut höfði, lagði saman
lófa og mælti við Guð.“
(Hávamál Indíalands, Ellefta kviða,
9-14. 2. útg. 1978.)
ís í Gundestrup-mýri
Hér hef ég tínt til ýmsa frum-
texta úr indverskum ritum, sem
fja.Ha. um guðdóminn Is. Hiklaust
mætti draga fram ýmsar hliðstæður
úr helgiljóðum biblíunnar, þar sem
Jahve er lýst. Þar myndi ég feta í
fótspor þeirra miklu gamlatesta-
mentisfræðinga, sem tengt hafa
texta gamlatestamentisins við trú-
arheim nágrannaþjóðanna. Eg læt
það ógert að sinni, enda er óvíst
að slíku yrði tekið með þökkum.
Það er affarasælla að halla sér að
babýlónska drottninum, Mardúk.
Að minnsta kosti viðurkennir Guð-
fræðideild Háskólans þau tengsl nú
orðjð.
Ég vil aðeins benda á eitt atriði.
Fyrir hundrað árum fannst innsigli
í Indus-dal. Innsigli þetta var frá
því um 2300 f.Kr. Á því var mynd
af guðinum Sjíva, og voru í kringum
hann mörg dýr. Af því mátti sjá,
að þar var Rúdra á ferð í gerfi sínu
sem drottinn dýranna. — Nokkrum
árum síðar fannst ker í mýri hjá
Gundestrup í Himnalandi á norðan-
verðu Jótlandi. Meðal margra
mynda á þessu gullkeri var ein sem
svipaði mikið til hinnar sem var
2000 árum eldri. — Tæpast má
gera ráð fyrir að finna mynd af
guðdómnum ís öllu nær en þetta
til þess að álykta megi, að hug-
myndir um guðdóminn Is hafí í ein-
hveijum mæli verið þekkt í Vestur-
Evrópu mjög snemma.
Höfundur er prestur og kirkju-
sagnafræðingur.
mw
ðend saub#;
iieiitlos klar
Froðuhreinsar fyrir gler og
hreinlætistæki.
Skýnandi gljái . . .
Engir taumar - engin ský.
Einkaumboð
Gæði á lágmarks verði
Símar 35408 og 83033
UTHVERFI
Alftamýri, raðhús
Austurbrún, staka talan
o.fl.
AUSTURBÆR
Grænahlíð
Einnig ódýrt Eeður. Ýmsir litir.
Skóverksmiðjan Iðunn:
LOKAÚTSALA
í Iðnaðarmannahúsinu,
Hallveigarstíg 1.
Stórfelld verðlækkun.
Opið virka daga frá
~K\ kl. 1 2 tÍI 18. mgm