Morgunblaðið - 12.01.1990, Page 10
10 MORGIJKBLAÐIÐ FÖSTGDÁGUR 12. JANÚAR 1990
HEBRON
eftir dr. Benjamín H. J.
Eiríksson
Hinn 3. janúar átti Þorvaldur
ITiðriksson, fréttamaður, viðtal í
Ríkisútvarpinu við frú Sigurlaugu
Asgeirsdóttur. Frúin er gift Pal-
estínuaraba og búa þau í Hebron,
borg á hernámssvæði er Ísraelsríki
hefir á valdi sínu. Hjónin eru
bæði íslenzkir ríkisborgarar. Lysti
frúin framkomu hinna ísraelsku
yfirvalda og hermanna þeirra.
Lýsingin var mjög i samræmi við
það sem lesa hefir mátt í blöðunum
í lengri tíma, nema hvað frétta-
manninum fannst hann þurfa að
bæta svolítið um hjá frúnni.
Astandið er þannig að börn og
fullorðnir arabar, oft grímuklædd-
ir, kasta gijóti og benzínsprengj-
um að hermönnum og að farar-
tækjum. Hermennirnir nota bar-
efli á fólkið, vatnsbyssur og
plastkúlur. Af þessu hljóta sumir
líkamsmeiðingar, jafnvel bana,
aðallega arabarnir. Auk þess eru
sumir þeirra sektaðir, fara í fang-
elsi eða útlegð eða fá jafnvel hús
sín sprengd í loft upp. Einstaka
„Ólöghlýðni hefir ævin-
lega og á öllum tímum
í fÖr með sér mótað-
gerðir yfírvaldanna, og
ætti ekki út af fyrir sig
að þurfa að fjölyrða um
það. I Biblíunni stendur
meira að segja að öllum
yfírvöldum beri að
hlýða, þau séu frá
Guði.“
ísraeli, borgari eða hermaður,
finnst myrtur á víðavangi.
í Austurlöndum nær hefir um
árþúsundir oltið á ýmsu um yfir-
völd. Stói-veldi hafa komið í tímans
Dr. Benjamín H.J. Eiríksson
rás með sína íbúa og yfirvöld.
Hinar mörgu þjóðir og þjóðabrot
hafa á ýmsum tíma lotið annarrar
þjóðar yfirvaidi og það ekki alltaf
þótt svo mikið tiltökumál. Ýmsir
hafa því átt borgirnar, þessi í dag,
hinn á morgun. Og hver er kominn
til að fullyrða að sú þróun sé nú
þegar á enda?
Olöghlýðni hefir ævinlega og á
öllum tímum í för með sér mótað-
gerðir yfirvaldanna, og ætti ekki
út af fyrir sig að þurfa að fjölyrða
um það. í Biblíunni stendur meira
að segja að öllum yfirvöldum beri
að hlýða, þau séu frá Guði. Þessu
kynnu menn að vilja svara með
því að segja, að nú sé um að ræða
styrjöld. Sé svo, þá er ástæðulaust
að kvarta undan styijaldaraðgerð-
um sem slíkum. Þær eru þá eðli-
legur gangur mála.
Þegar ég heyrði að frúin var
að segja frá Hebron, minntist ég
þess að Hebrpn er borg Abra-
hams, ættföður gyðinganna. Hann
hafði keypt landið af hetítanum
Efron fyrir 400 sikla silfurs. Það
er því ekkert óeðlilegt, svona
pólitískt talað, að erfingjar hans
geri tilkall til landsins, til Hebron,
en það eru afkomendur ísaks og
Jakobs.
Frúin sagði að Hebron væri
„arabísk borg“. Þegar ég heyrði
þetta minntist ég þess að hafa
fyrir nokkrum árum lesið frásögn
um Hebron. Þar sagði að gyðingar
hefðu ávallt búið í Hebron. En svo
gerðist það um miðjan þriðja ára-
tug þessarar aldar, meira en 40
árum áður en Ísraelsríki var stofn-
að, að arabar framkvæmdu mikla
hreinsun í Hebron. Þegar henni
Iauk var enginn gyðingur lífs í
borginni. Þar með varð Hebron
,judenrein“. Með svona aðferð er
hægt að gera hvaða borg sem
„arabíska“. Hugsanlega er þetta
ein ástæðan fyrir því hve stirðir
Israelar virðast vera, samkvæmt
frásögn frúarinnar, þegar arabar
koma og biðja um þjónustu í einka-
reknu sjúkrahúsi gyðinga, og segj-
ast vera frá Hebron. Já, Hebron
er „arabísk borg“, eitt og annað
virðist samt vanta í borginni, ann-
að en gyðinga.
Aröbum sem lesa Biblíuna getur
ekki liðið rétt vel eftir þann lest-
ur. Þar er framtíð gyðinganna
máluð björtum litum, og er þó
ekki allt sagt. Framtíð fjandmanna
þeirra er þar máluð í allt öðrum
og dekkri litum og_ það í báðum
hlutum Biblíunnar. í Biblíunni eru
líka fyrirmæli Guðs til gyðinganna
um það hvernig þeir eigi að fara
með herteknar borgir. Ekki geta
þau fyrirmæli heldur vakið fjand-
mönnum þeirra neina gleði.
Fréttastofan
Ég kunni því illa að fréttamað-
urinn Þorvaldur Friðriksson lagði
frúnni orð í munn. Hann talaði
um „grimmd" ísraela. Hann talaði
einnig um „himinháar" sektir, sem
arabarnir yrðu að greiða. Hvorugt
þessara orða notaði konan það ég
heyrði. Annars er það ekkert- nýtt
að starfsfólk Fréttastofunnar boði
pólitískar Skoðanir sínar og hleypi-
dóma í gegnum val á fréttum og
túlkun þeirra. Hlutlægt mat
heimtar sérstaka þjálfun hugar-
farsins, þjálfun sem það flest virð-
ist vanta. Ég sé ekki betur en að
Fréttastofan sé enn í samkeppni
við Þjóðviljann um það, hvort
þeirra muni reynast seinast vígi
kommúnistaáróðursins á íslandi.
í sambandi við hina miklu at-
burði austan járntjalds, hrun
heimskommúnismans, virðast orð-
in kommúnisti og kommúnistar
enn nánast bannorð hjá fréttastof-
unni. Púkarnir kringum Þjóðvilj-
ann og á Fréttastofu Ríkisútvarps-
ins ætla, það best verður séð, að
varðveita í lengstu lög „áruna
hreina“. Þeir ættu að minnast
þess, að „það sér ekki á svörtu“.
Höfundur var uni árabil
ráðunautur ríkisstjórnarinnar í
efnahagsmálum ogsíðar
bankastjóri Framkvæmdabanka
íslands.
ALVORU
A GOLFEFNUM!
TEPPI - DUKAR - FUSAR
GÓLFTEPPI 15-30% AFSLÁTTUR
Dæmí: Master Píece kanadísk stofuteppí. Áðtir kr. 2.593,- m2
100% polyamid - blettavarin.____________Ná aðeíns kr. 1.945,- m2
PARKET - GÓÐUR STAÐGREIÐSLUAFSLÁTTUR
Á meðan átsalan stendur bjóðum víð afslátt á norska gæðaparketínu frá Boen.
Uppáhaldsparket allra fagmanna. Sértílboð: bírki. Verð áður kr. 3.904,- m2
Verð ná kr. 2.925,- m2
GÓLFDÚKAR 15%-25% VERÐLÆKKUN
AUír Armstrong-dákar Iækka um 15% á útsöíunní. Armstrong þarf ekki að Iima.
Dæmí: Harmony. Verð áður kr. 990 ,- m2
______________________________________________Verð ná kr, 743,- m2
FLÍSAR - ALLT AÐ 35% AFSLÁTTUR Á AFGANGSFLÍSUM
ítalskar og spánskar gólf- og veggflisar í 1. gæðaflokki. Fallegar og ódýrar. ÖII hjálparefni
og fagleg ráðgjöf. Dæmi: Altopíano. Verð áður kr. 1.904,- m2
Verð ná kr. m2
STÖK TEPPl, MOTTUR OG DREGLAR MEÐ 15-25% AFSLÆTTI
DÚKAR OG TEPPI:
Afgangar og bátar á heíl herbergí og minni fleti með 35-60% afslættí.
Hafið málin með ykkur. Það sparar ykkur tíma og fyrírhöfn.
Þíð getið sparað þósundir á átsölunní hjá okkur.
Eieuro pBSfl £7 l:—— 1
_J, KHEDIT A VISA 1 SKatiem
TEPPABUÐIN
;
GOLFEFNAMARKAÐUR SUÐURLANDSBRAUT 26 S-91 681950
i
í
í
í
i
4
€
(
i
i
C