Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 1
88 SIÐURB/C 77.tbl. 82. árg. FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 Prentsmiðja Morg-unblaðsins Þingmenn í uppreisn gegn Zhír- ínovskíj Moskvu. Reuter. TVEIR þingmenn sögðu sig úr þingflokki rússneska þjóðernis- sinnans Vladímírs Zhírínovskijs í gær og annar þingmaður í flokknum hótaði að „eyðileggja mannorð hans sem stjórnmála- manns“. Vladímír Borzjúk og Vladímír Novíkov, forystumenn flokksins í héruðunum Oijol og Údmúrtía, sögðu sig úr þingflokknum til að mótmæla öfgafullum yfirlýsingum Zhírínovskíjs. „Ég er algjörlega andvígur lýðskrumi Zhírínovskíjs, sem skaðar ekki aðeins flokkinn heldur gengur gegn lagalegum og siðferðilegum mannúðarreglum," sagði Borzjúk í ræðu í Dúmunni, neðri deild þingsins. Annar uppreisnarmaður innan flokksins, Viktor Kobelev, kvaðst hafa upplýsingar sem gætu skaðað Zhírínovskíj en sagðist ætla að bíða með að skýra frá þeim. „En ef hann misbýður mér persónulega eyðilegg ég mannorð hans sem stjómmála- manns.“ Þremenningunum var ekki boðið á flokksþing um helgina þar sem Zhírínovskíj var veitt eins konar alræðisvald innan flokksins. Sambandsráðið, efri deild rúss- neska þingsins, bauð í gær Borís Jeltsín forseta birginn með því að neita að samþykkja afsögn Alexejs Kazanníks, sem sagði af sér sem ríkissaksóknari í febrúar til að mót- mæla tilraunum forsetans til að koma í veg fyrir að andstæðingar hans yrðu látnir lausir úr fangelsi eftir að þingið hafði veitt þeim sak- aruppgjöf. Jeltsín gaf út yfirlýsingu um samþykkt þingsins og sagði að Kazanník yrði ekki ríkissaksóknari aftur. Reuter Serbar vilja allsherjarvopnahlé l \ / X.v..y l **■ ♦ * [ •' '■ ■•> • ^ í ^ SERBAR héldu í gær áfram stórskotaárásum sínum á bæinn Gorazde í Bosníu sem er eitt af þremur svokölluð- um „griðasvæðum11 Sameinuðu þjóðanna í landinu. Að minnsta kosti 360 manns hafa beðið bana í árásunum undanfarna daga. Serbar fóru þess þó á leit við Michael Rose, yfirmann friðargæsluliðs Sameinuðu þjóðanna, að hafa milligöngu um fund við yfirmann Bosníuhers um allsherjarvopnahlé í landinu. Alija Izetbegovic, forseti Bosníu, sagði að slíkt vopnahlé gengi ekki nema Serbar létu öll þungavopn sín af hendi. Tvö ár eru nú liðin frá því umsátur Serba um Sarajevo hófst og borgarbúar hafa hafist handa við endurreisn borgarinnar. Búist er við að Bosníustjórn óski eftir jafnvirði 19 milljarða króna fjárhagsaðstoð til að Ijármagna brýnustu viðgerðir. Á myndinni eru verkamenn að flytja þurtu skemmda bíla í bosnísku höfuðborginni. Búrúndí og Rúanda Forsetar drepnir Bujumbura. Reuter. FORSETAR Mið-Afríkuríkjanna Búrúndí og Rúanda biðu bana í gærkvöldi þegar flugskeyti var skotið á flugvél sem þeir voru í við lendingu í Rúanda, að sögn vestrænna stjórnarerindreka í höfuðborg Burundi, Bujumbura. Stjórnarerindrekarnir sögðust sannfærðir um að Cyprien Ntary- amira, forseti Búrúndí, og Juvenal Habýarimana, forseti Rúanda, hefðu látið lífið í árásinni. Forsetarnir voru að koma af fundi leiðtoga Afríkuríkja í Tanzan- íu. Flugvélin brann til kaldra kola á flugvellinum í Kigali í Rúanda. Sylvestre Ntibantuganya, forseti þingsins í Búrúndí, flutti sjónvarps- ávarp þar sem hann hvatti lands- menn til að sýna stillingu. Sam- kvæmt stjórnarskránni tekur þing- forsetinn við störfum þjóðhöfðingja falli hann frá. 2.500 friðargæsluliðar á vegum Sameinuðu þjóðanna eru í Rúanda, sem er að rétta úr kútnum eftir þriggja ára borgarastyijöld milli Hútúa og Tútsa. Hútúar eru um 85% íbúanna í Rúanda og Búrúndí en hafa lengi verið undirokaðir af Tútsum. Forza Italia hótar að kuýja fram kosningar Rómaborg. Reuter, The Daily Telegraph. Reuter Mannskæð sprengjuárás í ísrael ÁTTA manns biðu bana og um 50 særðust þegar bifreið hlaðin sprengi- efni sprakk í loft upp rétt við strætisvagn í bænum Afula í ísrael í gær. íslömsku öfgasamtökin Hamas lýstu tilræðinu á hendur sér. Fulltrúi sam- takanna í Jórdaníu sagði að sprengjutilræðið væri réttmæt hefnd vegna morðanna í Hebron þar sem ísraelskur landnemi myrti að minnsta kosti 30 Palestínumenn. Hann bætti við að Hamas myndi grípa til frekari að- gerða gegn her Israels og landnemum á hernumdu svæðunum. Á mynd- inni er stúlka sem særðist í tilræðinu borin i sjúkrabíl. Sjá „Börnin í „ljósuin Iogum“ ...“ á bls. 31. FLOKKUR ítalska fjölmiðlajöfursins Silvios Berlusconis hótaði í gær að knýja fram nýjar þingkosningar ef Umb- erto Bossi, leiðtogi Norðursambandsins, héldi áfram að hindra myndun nýrrar ríkisstjórnar. „Ef Umberto Bossi heldur áfram að bijóta gegn vilja þjóðarinnar eig- um við ekki annars úrkosti en að efna aftur til kosninga," sagði í yfir- lýsingu frá flokki Berlusconis, Forza Italia (Áfram Ítalía). Flokkurinn bætti við að kjósendur myndu örugg- lega refsa Bossi fyrir þvermóðsku hans og ábyrgðarleysi. „Ítalía má ekki vera bananalýðveldi þar sem vilji þjóðarinnar er sniðgenginn af hálfu flokksleiðtoga sem vill gera allt 'til að halda völdum sínum og leiðir hjá sér vandamál landsins." Berlusconi ákvað á þriðjudag að fresta frekari viðræðum við Norður- sambandið um myndun 53. stjórnar Italíu eftir heimsstyijöldina síðari. Bossi hafði þá hafnað Berlusconi sem forsætisráðherra og sett úrslita- kosti um myndun sambandsríkis á Ítalíu. Forystumenn Norðursambandsins tilkynntu í gær að þeir hygðust hefja viðræður við helsta miðflokkinn, It- alskan sáttmála, um að fela stjórn- lagaþingi að setja stjórnarskrá nýs sambandsríkis. Mario Segni, leiðtogi ítalsks sáttmála, kvaðst þó ekki hafa fengið tilboð um slíkar viðræð- ur og gat ekki svarað því hvort eða hvenær þær hæfust. Bossi gagnrýndur ítölsk dagblöð birtu í gær forystu- greinar og lesendabréf þar sem Bossi er gagnrýndur harðlega. „Með því að hætta viðræðunum við Bossi hef- ur Berlusconi bundið enda á eina af smánarlegustu uppákomunum í ítölskum stjórnmálum," sagði í for- ystugrein La Stampa. Flokkur Bossis er með um þriðj- ung þingsæta hægriflokkanna þriggja í Frelsisbandalaginu, 120 sæti af 366 í neðri deildinni. Berlusc- oni segir að margir af þingmönnum Norðursambandsins hafi náð kjóri vegna stuðnings fylgismanna Forza Italia í einmenningskjördæmum. Kvenprestum hafnað Lampeter. Reuter. TILLAGA um að heimila prestvígslu kvenna fékk ekki nægiiegan stuðning í atkvæða- greiðslu hjá biskupakirkjunni í Wales í gær. Biskupar, prestar og fulltrúar leikmanna tóku þátt í atkvæða- greiðslunni eftir heitar umræður. Leikmenn og biskupar voru lang- flestir hlynntir prestvígslu kvenna en andstaðan var of mik- il á meðal presta til að tillagan fengi tilskilinn meirihluta, tvo þriðju atkvæða. Biskupar sögðust ætla að efna til skyndifundar til að ræða hvernig koma mætti í veg fyrir klofning innan kirkjunnar. Þar sem litlu munaði að tillagan yrði samþykkt geta biskuparnir efnt til annarrar atkvæðagreiðslu á næsta ári en þangað til að minnsta kosti verða konur ekki vígðar prestar í Wales. Áður hafði móðurkirkjan í Englandi samþykkt að heimila prestvígslu kvenna. Það varð til þess að tugir presta og ýmsir þekktir menn gengu í kaþólsku kirkjuna, þeirra á meðal tveir ráðherrar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.