Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 64

Morgunblaðið - 07.04.1994, Blaðsíða 64
WKS% hewlett PACKARD ----;-;-------UMBOÐIÐ HPÁ iSLANDI HF Höfdabakka 9, Reykjavík, sími (91)671000 Frá möguleika til veruleika MORGUNBLAÐW, KRINGLAN I 103 REYKJA VÍK SÍMI 691100, SÍMBRÉF 69US1, PÓSTHÓLF 3010 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 85 FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 1994 VERÐ í LAUSASÖLU 125 KR. MEÐ VSK. Lagafrumvarp fjármálaráðherra Gjaldfyr- ir atvinnu- réttindi stórlækkar SAMKVÆMT frumvarpi sem fjármálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi verður leyfisgjald fyrir að veita sérstök atvinnuréttindi 5 þúsund krónur. Það þýðir stór- lækkun á gjaldinu í flestum tilfell- um. Þannig lækkar gjaid fyrir —málflutningsieyfi fyrir Hæsta- rétti, lyfsöiuleyfi og sérfræði- lækningaleyfi úr 75 þúsund krón- um í 5 þúsund krónur. í greinargerð með frumvarpinu kemur fram að gjöld fyrir veitingu atvinnuréttinda og tengdra réttinda hefðu verið hækkuð verulega með reglugerð árið 1989 og sú hækkun verið staðfest með lögum árið 1991. Þessi gjaldtaka hafi sætt mikilli gagnrýni, enda frekar í hærri kant- inum miðað við þann kostnað sem Jdúí að baki leyfisveitingum af þessu '^-Tagi. Verði að hafa í huga að al- mennt sé um að ræða persónubund- in réttindi einstaklinga og í Ijósi þess sé lagt til að sama gjald verði tekið fyrir öll leyfi af þessum toga, 5 þúsund krónur. Þá verði gjald fyr- ir endurnýjun þúsund krónur. Gert er ráð fyrir að þessi breyting kosti ríkissjóð 10 milljónir króna. Samkvæmt gildandi gjaldskrá kostar leyfi til málflutnings fyrir Hæstarétti 75 þúsund krónur, ieyfi til málflutnings fyrir héraðsdómi kostar 50 þúsund krónur, almennt lækningaleyfi kostar 5 þúsund krón- ur en leyfi til að stunda almennar tannlækningar kostar 50 þúsund krónur. Sérfræðilæknisleyfi kostar Mf5 þúsund krónur. Leyfi til tækni- "íræðinga, verkfræðinga og við- skiptafræðinga kostar 25 þúsund krónur, meistarabréf kostar 25 þús- und krónur og atvinnuflugmanns- skírteini kostar 25 þúsund krónur svo nokkuð sé nefnt. -----» » »---- Minni eftir- spurn Is- lands eftir lánum NIB EFTIRSPURN eftir lánum frá Norræna fjárfestingabankanum, frá íslandi hefur dregist talsvert það sem af er árinu. Lán bankans hingað til lands námu á síðasta ári um 5,2 milljörðum króna en fyrstu þijá mánuði þessa árs er búið að samþykkja lánveitingar hingað fyrir riflega 700 milljónir. Guðmundur Tómasson, aðstoðar- ^jíankastjóri NIB, segist gera ráð fyr- .r minni eftirspurn íslendinga eftir lánum í ár en NIB er umfangsmesti alþjóðlegi lánveitandi Islands sem er með um 9,2% af heildarlánum og ábyrgðum bankans. Athygli vekur að á síðasta ári heimilaði NIB ián til íslenska ríkisins að fjárhæð 700 milljónir króna til að endurfjármagna framkvæmdir við nýju flugstjórn- armiðstöðina á Reykjavíkurflugvelli en hún hefur enn ekki verið nýtt. Sjá bls. Bl: „Minni eftir- spurn...“ Morgunblaðið/RAX Skíðasvæði í rúst STARFSMENN ísafjarðarkaupstaðar fóru á Seljalandsdal í gær og staðfestu það sem menn höfðu talið að gríðarlegar skemmdir hafa orðið á skíðamannvirkjunum á Dalnum. Lyfturnar eru ónýtar, eins og þessi mynd af endamastri einnar lyftunnar gefur til kynna, og jafnvel er talið að undirstöður þeirra hafi skemmst. Ekki lengnr hættuástand ALMANNAVARNANEFNDIR á Vestfjörð- um aflýstu í gær hættuástandi vegna snjó- flóða. Fólk á Flateyri, í Bolungarvík, Hnífs- dal og á Isafirði sem yfirgefa þurfti hús sín í fyrradag gat því farið aftur í hús sín og sofið rólegt heima í nótt. Á þessum stöðum og nokkrum stöðum á Norðurlandi er áfram grannt fylgst með veðri og snjóalögum svo hægt verði að grípa til ráðstafana ef aftur verður talin hætta á snjóflóðum. Almannavarnanefnd ísaijarðar aflýsti um klukkan 19 í gærkvöldi því hættuástandi sem lýst var yfir eftir snjóflóðin í fyrradag. Fólk í um tólf húsum í Hnífsdal og nokkrum húsum á ísafirði gat því farið aftur í hús sín í gær- kvöldi og sofið heima. Gott veður var á ísafirði í gær og virðist lægðin sem spáð var að myndi valda snjókomu á ísafirði í fyrrinótt og gær hafa leysts upp. Hættuástandi var viðhaldið í gær vegna hennar og svo þess að í gærmorgun féll fleka- og kófsnjóflóð, svipaðrar gerðar og ísafjarðarflóðið, í Sauradal ofan við Súðavík. Tók það með sér fimm staura úr háspennulínu Orkubús Vestfjarða og var um tíma rafmagns- laust í Súðavík. Varað við ferðum í fjalllendi í gærmorgun var ákveðið að loka skíðasvæð- inu á Ólafsfirði vegna snjóflóðahættu en það var opnað aftur í gærkvöidi. íbúðarhús voru aldrei talin í hættu. Á Siglufirði leiddi athugun á snjóalögum í ljós að ekki væri lengur ástæða til að óttast snjóflóð. Hins vegar var fólk varað við að vera á ferð í ijalllendi. Sjá fréttir á bls. 4 og 37. Rekstrartap íslandsbanka 654 míUjónír króna 1993 Tæplega 600 milljónir til viðbótar í afskriftareikning - Hagnaður frá áramótum Ákveðið hefur verið að leggja til við hluthafa á aðalfundi bankans 25. apríl nk. að arðgreiðslur verði 4%, sem samsvarar því að um 150 millj- ónir króna verði greiddar út til hlut- hafa. Valur Valsson, bankastjóri ís- landsbanka og formaður banka- stjórnar, sagði í samtali við Morg- unblaðið í gærkveldi að þetta 600 milljóna króna viðbótarframlag í af- skriftareikning bankans hefði verið unnt að ákveða, þar sem eiginfjár- staða bankans væri traust. Þrátt fyrir að þessar afskriftir valdi rekstr- artapi upp á 654 milljónir króna á árinu 1993, verði eiginfjárhlutfallið 10,3%, sem sé vel yfir því lágmarki sem lög kveði á um, en það er 8%. Valur telur að þetta geti leitt til vaxtalækkunar hjá íslandsbanka á þessu ári: „Það er augljóst að vextir í dag markast að töluverðu leyti af þeim miklu framlögum í afskrifta- reikning, sem lánastofnanir hafa þurft að glíma við undanfarin ár. Þegar þeirri byrði léttir, þá gefur það augljósiega svigrúm til vaxtalækk- unar,“ sagði Valur. Forsvarsmenn íslandsbanka telja að með þessum afskriftum séu mörk- uð þáttaskil í afkomunni og tryggt eins og framast er unnt að taprekst- ur sé að baki. Sjá viðtal við Val Valsson í miðopnu: „Með þessu sérstaka átaki verður tapið að baki“. REKSTRARTAP íslandsbanka hf. á árinu 1993 var 654 milljónir króna. Bankaráð og bankastjórn ákváðu við uppgjör liðins árs að leggja um 600 milljónir króna í afskriftareikning vegna útlána sem metin eru í taphættu, til viðbótar þeim 1.600 milljónum króna sem lagðar voru í afskriftareikning á liðnu ári. Endanlegar afskriftir á liðnu ári námu 1.700 milljónum króna. íslandsbanki hefur verið rekinn með 30 til 40 miljjóna króna hagnaði á mánuði á þessu ári, þrátt fyrir 120 milljóna króna mánaðarlegt framlag í afskriftareikning. Bankanum tókst að spara um 400 milljónir króna í rekstri á liðnu ári. Féll af þaki og lést 34 ÁRA gamall maður lést á gjörgæsludeild Borgarspítal- ans í gær af áverkum sem hann hlaut er hann féll af þaki ný- byggingar við Arnarsmára í Kópavogi í gærmorgun. Slysið varð þegar verið var að vinna við að hífa einangrunarplast á þak byggingarinnar og slóst hlassið í manninn sem stóð á þak- inu og féll hann til jarðar, rúm- lega 10 metra.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.