Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 22
26
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
mikið á rauðum mýrarjarðvegi og öðrum þræði svörtu gosefni, sem
blandaðist svo óskipulega, að ekki var unnt að sjá úr hvernig hnaus-
um hafði verið hlaðið. Þessi veggjamold var að vísu auðþekkt, en
ekki var að sama skapi auðvelt að nota hana til að kveða nákvæm-
lega á um veggina, því að þeir voru útflattir og jafnvel hrundir, svo
16. mynd. Frá uppgrefli skálans, sc& veslur eftir; framan vi'ö
norfturvegg eru hellur, sem veriö hafa í þaki og haldiS röð siiuii
þegar þaS féil inn í tóftina. — From the excavation of tlie hall,
looking west; the flagstones on edge are from the down-fallen
roof.
að moldin úr þeim var að nokkru leyti inni í tóftinni, og auk þessa
er mold úr þökum eins að samsetningi.
Gólfið í stofunni er sæmilega slétt og hallar eindregið að miðju
frá öllum hliðum, en er þó yfirleitt nokkru lægra innst en fremst.
Á miðju gólfi er hella allstór auk annarra smærri, sem sumar eru
sýndar á uppdrætti, aðrar ekki. Þessar smáhellur á gólfi eru þar að
vísu hver á sínum rétta stað, en gegna þó engu markverðu hlutverki
í húsinu frá upphafi, heldur hafa verið látnar þarna í einhverju
skyni síðar. Virðist ófróðlegt að merkja þær allar inn á uppdrátt,
enda ekki alltaf öldungis víst, að ekki séu úr þaki eða komnar þarna
fyrir einhverja tilviljun. Gólfskán í stofunni er misþykk, 2—5 sm,
en þó nokkru meira um miðju, kringum stóru helluna,. og virðist aug-