Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 113
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
117
um og lóðréttum bekkjum. Bakhliðin: Randir og kílskurður í bekkj-
um. Rósetta á báðum skammhliðum. Er hún úr fjögurra blaða bát-
skurðarrós, og ganga á ská út á milli blaða hennar fjögur rist blöð,
löng og oddhvöss, skreytt rúðustrikun. Auk þess átta bátskurðar-
frævlar. Kílskurðar- og naglskurðarraðir ásamt skáskoruborðum
skipta lokinu í tvo ferningsreiti. í hverjum reit er bátskurðarstjarna,
áttablaðarós, í hring. Á hringferlinum er rist miðlína, utan um hann
er kílskurðarhringur. Stór bátlaga skora liggur út að hverju horni,
og báðum megin við hana lítill, þríhyrndur bátskurður. Bekkir úr
ristum línum og bátskurði eru á efri brúnum hliðanna og frambrún
loksins. — Frágangur þokkalegur og snotur.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: Kassi með bátskurði. Isafjörður, íslandi.
7. Safnskýrslan: Um 1800. Keyptur á 6 kr.
1. 0. 322. (X 294.) Kistill úr beyki. Trénegldur. Hjarir úr mess-
ingarvír. Lykkja úr messing á framhlið. Lokið nær yfir brúnir kist-
ilsins á skammhliðunum og eru þar á því okar. L. 15.8. Br. 9.3. H. 8.5.
2. Slitinn, einkum ofan á loki. Annar okinn nýr, en hinn vantar.
Nokkrir naglar úti. Smástykki vantar. Nokkur smágöt á loki og
framhlið, sjálfsagt eftir lokuútbúnað. Brúnbæsaður. Leifar af rauð-
um lit á hliðunum og innan á loki.
3. Tvær höfðaleturslínur á hverri hlið, þrjár á lokinu. Strik-
heflun meðfram langbrúnum allra flata. Kaðalsnúningsbekkur milli
línanna á báðum skammhliðum. Rúðubekkur, myndaður með fer-
hyrningaskurði er milli línanna á langhliðunum. — Frágangur snot-
ur. —
4. Hvorki dagse.tning né ártal.
5. (Eftir leshætti, sem er á miða í kistlinum, hlýtur áletrunin að
byi’ja á bakhliðinni) :
alteinsm sstu darniptn gadþ grasidgru
argaindde ndau hliottuo ekur ndgroanda
nsanottu8
(Talan átta er víst aðeins til uppfyllingar.)
6. Þrír miðar eru í kistlinum. Á þeim stendur m. a.: Fá du,
kvinde, sá mangen glædestund som der dekker mange græsstrá sle.tten
en forársnat da jorden er kommen i gröde. Það skal birja að lesa