Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 130
134
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
höfðaleturslínur eftir endilöngu baki. — Þokkalega unnið.
4. Síðast í miðlínunni er ártalið 1860, lágt upphleypt.
5. iosep
mindai
dimig 1860
parbir a
Þig
6. Safnskýrslan: Isafjörður, íslandi.
7. Safnskýrslan:----------í áletrunina vantar, þar sem lokið er
týnt. -------
1. 0. 320. (X 291.) Stokkur úr beyki. Botninn úr furu. Hliðar
tappaðar saman. Botn festur með koparnöglum og (seinna?) með
járnnöglum. Lokið liggur ofan á, á öðrum gafli er upphækkaður
miðkafli, sem það grípur um, það hefur haft læsingarútbúnað með
skífu, tveimur hjólum og þremur hnöppum. L. 18.9. Br. 10.8 H. 11.4.
2. Lok og botn dálítið sprungin. Tvo hnappa, sem hafa líklega
verið kringlóttir, vantar nú, einnig kringlótta skífu, sem við þá átti
(en einn ferhyrndur hnappur er eftir). Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og ofan á lokinu. Með-
fram báðum langhliðum á lolcinu er höfðaleturslína. Annars lágt
upphleypt jurtaskrautverk. Mjóir stönglar, um 7 mm, með þróttmik-
illi ristri miðlínu. Höft þar sem þeir skiptast í greinar. Upp úr
nokkrum blöðum hefur verið hvelft. Flest eru þau tungulaga. Allar
greinarnar vefjast að lokum í sívafning og enda á þykkri kringlu.
Á báðum langhliðum og öðrum gafli er samhverf tilhögun út frá
uppréttum stöngli í miðju. Á hinum gaflinum byrjar jurtin í neðra
horni til vinstri, þar er einn sívafningur og margir smáliðir. Báðum
megin við ferhyrnda hnappinn á lokinu eru teinungsbútar (tvær
sveigjur), samhverfir hvor gegnt öðrum. 1 reitnum hinum megin
við götin eftir hina týndu hnappa er skrautverk, sem líkist bókstaf
eða fangamarki, er það myndað úr sömu jurtahlutum. — Þokkalega
og nostursamlega unnið.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. olafurionsson
aþennannstok
6. Á miða í stokknum: ísafjörður, Islandi. (Kemur heim við
safnskýrsluna.)
7. 18. öld,--------Keypt á 12 kr.