Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 33
BÆR 1 GJÁSKÓGUM I ÞJÓRSÁRDAL
37
parti óskýr og þrýtur alveg 6,3 m frá dyrum. Enginn vafi er á, að
þetta er venjulegur fjósflór, enda sést greinilega, að verið hafa básar
að minnsta kosti vinstra megin þegar inn er gengið; eru þar fallnar
hellur við vegginn, að vísu fremur smáar, en nógu stórar til að vera
báshellur. Hús þetta hefur því verið fjós, enda sett eins og þau fjós
27, mynd. Fjóx, séð inn eflir. — The byre, lookincj in frorn doorway in the
gable.
önnur, sem þekkt eru frá fornöld, snúið upp í brekku, þannig að halli
verður fram eftir gólfi og út úr dyrum. Þetta fjós hallar raunar
óvenjulega mikið, því að hæðarmunur gólfsins innst og fremst er
hvorki meira né minna en 1,25 m, og er það gríðarmunur á gólfi,
sem er ekki nema 12,6 m að lengd.
En þó að hús þetta hafi verið f jós, svo sem greinilega sést í fremri
hluta þess, hefur það um eitthvert skeið verið notað til annarra
þarfa. Þar sem flórinn þrýtur í um það bil miðju húsi, fannst ýmis-
legt, sem benti til smíða eða járngerðar, rauði eða hálfunnið járn,
klumpar með rauða og kolum samrunnum, kol, járnsindur mikið.
Á einum stað fyrir miðjum austurvegg voru kol og rauði saman í