Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 116
120
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: Keypt af Mohrbutter, fornsala í Kaupmh. á 100
kr., en hann keypti kistilinn á uppboði á munum úr eigu baróns
Rosenkrans, tollstjóra í Guldborg. ísland.
7. Safnskýrslan: Tímabilið rétt fyrir 1800.
1. O. 3UU. Kistill úr furu, Festur saman með trénöglum og (seinna)
með járnnöglum. Ummerki eftir lás á báðum langhliðum. Skráargöt,
sem fyllt hefur verið upp í, eru þar einnig. Ummerki eftir tvö innri
skilrúm og tvo handraða. Járnlykkja á annarri skammhlið. L. 57. Br.
38. H. 25.5.
2. Lok og lás vantar. Ekki sér þess nein merki, að hjarir hafi
verið á kistlinum, en mörg göt eftir járnnagla eru í efri brúnum
hliðanna. Handraðar og skilrúm horfin. Brestir, flísar dottnar úr.
Botninn allfúinn. Maðksmoginn. Brúnbæsaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum. Alls staðar sama efnis-
atriði (tvítekið á langhliðunum). I ytri ramma, gerðum úr grunn-
um, samhliða rákum, er kaðalsnúningsbekkur. Innanvið er annar
dálítið breiðari. Því næst hallar rammanum á kafla, og er þar skipt
með tveimur samhliða rákum. En innst, á grunnfletinum, sem er
um 1 sm lægri, er bandflétta, líkust þéttum vef úr lóðréttum og
láréttum böndum. Á báðum langhliðum eru tveir reitir af þessari
gerð, lægri en flöturinn umhverfis. Milli þeirra er bandflétta með
hornalínumunstri. (Svo virðist sem sniðið hafi verið utan úr hlið-
unum efst, en þar vantar ofan á kaðalsnúninginn, alls staðar nema
á annarri skammhlið.) — Snoturlega unnið, en hvergi sérlega vandað
til smáatriða. Allgóð heildaráferð.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áletrun engin.
6. Safnskýrslan: I byggingardeildinni í Lyngbv síðan vorið 1906
(inngangsskálinn ,,lsland“).
1. O. 3í5. Kistill úr beyki. Hliðarnar geirnegldar. Botninn festur
með messingarnöglum og járnnöglum. Hjarir úr messingarlykkjum
og (nú) spottum. Hakakrókur úr járni með messingarkeng. Þar
sem lokið nær fram fram yfir skammhliðarnar eru okar neðan á
því. L. 22.8. Br. 11.1. H. 10.5.
2. Hjarirnar ófullkomnar. Flísar dottnar úr. Dálítið maðksmog-
inn. Daufbrúnn á lit að utanverðu, sennilega bæsaður.