Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 164
SKYRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1960
Almenn safnstörf. Tryggvi Samúelsson húsvörður lét af starfi um
áramótin fyrir aldurs sakir. Ekki var ráðinn húsvörður í hans stað
á árinu, heldur bjargazt við aukamenn. Guðmundur Þorsteinsson
frá Lundi var hér eins og undanfarin ár nokkra mánuði framan af
ári, og gegndi hann húsvarðarstörfum með öðrum verkum á meðan.
Þegar hann fór, tók við þessu starfi Halldór J. Jónsson, sem var
hér í fjóra mánuði, júní—september. Síðustu þrjá mánuði ársins
var enginn húsvörður. Ritari safnsins, Kristín R. Thorlacius, fór í
þriggja mánaða orlof hinn 1. desember, en í hennar stað var ráðin
Nanna Bjarnadóttir. Að öðru leyti en þessu hefur ekki orðið breyt-
ing á starfsliði safnsins frá síðasta ári.
Geymsluvandræði eru enn mikil, þar sem sú von brást að safnið
fengi umráð yfir húsrými því, sem Náttúrugripasafnið hefur haft.
Helmingur þess var tekinn undir Eðlisfræðistofnun Háskólans, en
hinn helminginn hefur Náttúrugripasafnið enn, og er að þessu vikið
í síðustu skýrslu um safnið. Það hefur því orðið fangaráðið að taka
um sinn sem geymslurúm stofu þá, sem Tryggvi Samúelsson hafði
aðsetur í, meðan hann var húsvörður. Áuk þess var í turni hússins
útbúin stofa, sem nú eru í geymdar allar kvenlegar hannyrðir, hverju
nafni sem nefnast, þar með talinn allur fatnaður og kirkjuskrúði.
1 annarri stofu turnsins var búið um allt, sem við kemur Fornleifa-
félaginu, og fer þar mest fyrir upplagi af eldri árgöngum Árbókar.
Allmikil vinna fór í að ganga sem bezt frá þessum stofum til síns
ætlunarverks. Fornleifafélagið fluttist alfarið í hús Þjóðminjasafns-
ins á þessu ári, en hefur að undanförnu lengi átt hæli á dómkirkju-
loftinu.
Þorkell Grímsson hélt áfram með skrásetningu safnsins og skráði
gripi frá árunum 1951,, 1952, og 1953,, Þjms. 14811 — 15343, eða
533 númer. Þá samdi Þorkell einnig og sá um útgáfu á stuttum ensk-
um leiðarvísi um safnið (Summary Guide). Kom bæklingurinn út
snemma sumars, áður en ferðamannastraumur varð verulegur, og
varð mikil eftirspurn eftir honum.