Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 30
34
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
í Stöng, sem ég tel hiklaust hafa verið kamar. Hér í Gjáskógum er
þeim mun smærra búið, að hér er ræsið aðeins eitt, við annan vegg-
inn, en rennur eru við báða veggi í Stöng. Ég tel óþarft að fjölyrða
um þetta hér, engin önnur skýring virðist geta komið til greina, en
einhvern tíma þarf að taka þetta efni rækilega til athugunar,
bæði eftir rituðum og fornfræðilegum heimildum, enda tel ég þá
víst, að úr þessu fengist ótvírætt skorið.
24. mynd. Kamar, séð inn eftir, til lxægri skot inn í gafl, lil
vinslri innsti hluti rennunnar. — Lavatory, looking in; to the
left inner end of groove.
Við rannsókn þessa húss kom greinilega í ljós, að mannavist hafði
verið á þessum stað, áður en húsið var byggt. Undir gólfhellu við
fremri enda ræsisins var skálmynduð gryfja, 28 sm á dýpt frá hell-
unni, og var hún alveg full af viðarkolum og mýrarrauða í einum
graut og stór hálfbráðin rauðastykki innan um (25. mynd). í botni
gryfjunnar var deigulmór, sem hér er alls staðar undir. Gryfja þessi,
með því sem í henni var, hafði verið skorin þvert yfir, þegar grafin
var rennan í kamrinum, svo að upphafleg vídd hennar er óviss. Vel
má vera, að gryfja þessi sé í rauninni leifar af bræðsluofni, þó að
það megi ekki teljast fullvíst. Hitt er aftur á móti víst, að leifar
þessar eru eldri en kamarinn, enda staðfestist það af því, að sindur,