Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 165
SKÝRSLA UM ÞJÓÐMINJASAFNIÐ 1960
169
Gísli Gestsson hafði eins og á undanförnum árum umsjón með
daglegu starfi safnsins og stjórnaði sýningum þess. Að tillögu þjóð-
minjavarðar og með samþykki menntamálaráðuneytis sótti Gísli
námskeið í meðferð safngripa (Conservation of Antiquities), haldið
í Lundúnum 10.—23. júlí á vegum The British Council. Var Gísli
í þessari ferð 5.—28. júlí.
Meðan Halldór J. Jónsson var hér í húsvarðar stað, fór hann
skipulega yfir öll örnefnasöfn safnsins og gerði nákvæmt yfirlit
yfir það sem enn vantar, bæði einstaka bæi og stærri landssvæði.
Er það í fyrsta sinn að slíkt yfirlit hefur verið gert.
Guðmundur Þorsteinsson gerði eins og áður við marga safngripi,
en auk þess gerði Frank Ponzi listfræðingur við þrjú málverk (Finn
Jónsson, Gunnlaug Oddsen og Stefán gullsmið Þórarinsson) og alt-
arisbríkina góðu frá Ögri. Var viðgerð bríkarinnar mikið viðfangs-
efni og hafði lengi verið aðkallandi. Á nú að vera tryggt, að ekki
verði frekari skemmdir á hinu gamla listaverki.
Sýningar og aðsókn. Safnið var opið reglulega 9 stundir á viku,
en auk þess tóku safnmennirnir mjög oft á móti gestum og sýndu
þeim safnið utan sýningartíma. Skráður gestafjöldi var 22410.
Alls voru haldnar 14 sérsýningar í Bogasalnum eða sem hér segir:
Frank Ponzi, málverkasýning, 27. febr.—18. marz.
Ullarvinnusýning frá Statens kvinnelige. industriskole í Ósló 26.
marz—10. apríl.
Þorlákur R. Haldorsen, málverkasýning, 14.—30. apríl.
Kristján Davíðsson, málverkasýning, 7.—16. maí.
Hafsteinn Austmann, málverkasýning, 21.—30. maí.
Karl Zeise, málverkasýning, 11.—19. júní.
Hermann Schlenker, ljósmyndasýning, 25. júní—3. júlí.
Alfreð Flóki, teikningar, 3.—13. sept.
Bat-Yosef og John Ffrench, klippmyndir, 17.—25. sept.
Sólveig Eggerz Pétursdóttir, vatnslitamyndir, 1.—11. okt.
Einar G. Baldvinsson, málverkasýning, 22.—30. okt.
Jón Þorleifsson, málverkasýning, 5.—16. nóv.
Páll Steingrímsson, steinmulningsmyndir, 19.—27. nóv.
Guðmundur Einarsson, málverka- og höggmyndasýning, 1.—11.
des.
Allar voru sýningar þessar einkasýningar nema norska sýningin
frá Statens kvinnelige industriskole. Til hennar bauð Þjóðminja-
safnið og stóð straum af móttöku hennar, en sendingarkostnaður