Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 29
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
33
hlaðinn og uppistandandi með nokkrum steinalögum og er austur-
veggur hússins sjálfs í beinu framhaldi af honum alla leið inn í gafl.
Er veggur þessi allur 6 m, þar af göngin 2 og húsið 4 m. Bæði göng
og gólf halla nokkuð upp á við inn eftir. Breidd hússins er um 1,8
m, nema á 1 m löngum kafla innst, þar er það aðeins 70 sm, og er
þar í rauninni um eins konar skot inn í austanverðan gaflinn að ræða.
23. mynd. Kamar, vesturvegguriiui (hruninn) og rennan met)
stóru hellunni yfir. Lavatory, the west wall and groove, co-
vered by a flagstone 'whiclx has fallen down from the wall.
Fram með endilöngum austurvegg er venjulegt öskugólf, en fram
með vesturvegg inn að skoti er um 65 sm breið og álíka djúp renna
eða ræsi, og var veggurinn mjög hruninn niður yfir ræsið. Fyrir
fremri enda þess er reist upp hella mikil og hjá henni við vegginn
önnur álíka. Við þessar hellur er ræsið opið, en þar tekur við 1,5 m
löng hella, sem liggur eins og þak yfir ræsinu, en innst er það aftur
opið. Líklegt er, að hella þessi hafi í rauninni staðið upp á rönd við
vegginn, eins og hellan fremst í ræsinu, en snarazt fram yfir ræsið,
þegar veggurinn hrundi. Innst í ræsinu er op eða auga (kamars-
auga) þvert út gegnum vesturvegginn. í því opi að framan er stór
hella upp á rönd, en gert hefur verið yfir opið með hellum. Innst
eru flatar hellur í gólfinu við rennuna.
Ekki virðist vera vafamál, að hús þetta er sama eðlis og afhýsið
3