Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 93
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR í ERLENDUM SÖFNUM
97
3. Á framhlið er upphleyptur útskurður, um 2—5 mm á hæð.
Innan við langbrúnirnar, sem bæði eru afsneiddar og strikheflaðar,
og skammhliðarnar, sem skorið er í þrep, er fjölinni skipt í sex hér
um bil ferningslaga reiti, í einfaldri röð. Á höftunum milli þeirra
eru skrautbekkir: Einfaldaðir kaðalsnúningar, öfug S, skástrik,
vafteinungsstöngull, blaðskraut. I öllum reitunum er jurtaskreyti,
og ef betur er að gáð, myndar það bókstafi og tölustafi. Flatir, m:s-
jafnlega breiðir stönglar, allt að sm á br., með innri útlínum
og fáeinum höftum. Skreyttir auk þess rruéð litlum kílskurðarstung-
um, sem liggja hvor andspænis annarri, tvær í senn. Undningar,
oddhvöss og tungumynduð blöð, blóm og ávaxtakólfar (hinir síðast-
nefndu fylltir smágerðum hvolfskornum röðum). Skreyting blaðanna
dálítið breytileg. Ýmist eins og á stönglunum eða með löngum bát-
skorum, eða þá enn öðrum tegundum ski’autskurðar. — Þokkaleg-
ur frágangur.
4. Mun vera 1774.
(H?)
5. |E l|I7|S7[þ4|AA|DF|
(Safnskýrslan: E1 — 17 — S7(?) — H7(??) — A A —
TB(??)).
6. Safnskýrslan: Isafjörður,, Islandi. Keypt á kr. 21.50.
1. O. U89. (X 141). Rúmfjöl úr furu. L. 107.8. Br. 16. Þ. 1.7.
2. Dálítið slitin á endum. Brúnbæsuð.
3. Útskurður á framhlið. Er yzt rammi úr ristum línum, fyllt-
ur kaðalsnúningum. Kaðlarnir eru 5—7 mm á br., sléttir, myndaðir
með kílskurði. I reitnum fyrir innan er eins konar bylgjuteinungur,
ófullkominn, sem myndaður hefur verið með djúpum, þróttmiklum
útlínum. Teinungurinn sprettur ekki upp frá neins konar rót, en er
látinn fjara út báðum megin. Stönglarnir e.ru um 5 mm á br., sléttir.
I hverri bylgju er uppundin grein, sem verður að sívafningi og end-
ar á stórri kringlu, fylltri skipaskurði. Fáeinir smáundningar ganga
út frá sívafningunum að fjalarbrúninni. — Gróft verk. Fallegastir
eru kaðalsnúningsbekkirnir. (Á bakhlið er ristur ferhyrningur, virð-
ast vera á honum upphleyptir bókstafir, en allt er þetta máð.)
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Ale.trun engin.
6. Safnskýrslan: Kópsvatn, íslandi. Keypt á 2 kr.
7. Safnskýrslan: 18. öld.
7