Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 37
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
41
verið. Þó virðist hafa verið búið í því að staðaldri. Ekki virðist
ósennilega til getið, eftir þeim minjum sem fyrir liggja, að á þessum
stað hafi upphaflega verið stundaður rauðablástur frá bæjum niðri
í sveit, og kynni þá hús þetta að vera kofi sá, sem rauðablásturs-
mennirnir höfðust við í þann tíma, sem þeir voru að starfinu. Síðan
hefur einhver tekið sig til og farið að hafa þarna fasta búsetu og
stunda reglulegan búskap. Sá hefur þá byggt bæ á sama stað og kof-
inn hafði áður verið, gólf kofans og ýmsar minjar um rauðablásturs-
iðjuna á staðnum hafa þá orðið undir bænum.
Hugsanlegt ,er einnig, að húskofi þessi sé í rauninni fyrsta húsið
sem nýbýlingurinn reisti og bjó í, meðan hann var að koma sér fyrir
með að byggja sómasamlegan bæ. Kljásteinarnir sem á gólfinu
fundust gætu bent til heimilisiðju, sem ekki er að vænta í kofa rauða-
blástursmanna.
Forngripir.
f Gjáskógarústum fundust mjög fáir munir og fátæklegir, það
sem það var (31. mynid). Enginn þeirra dugar til öruggrar tímasetn-
ingar, en svo virðist sem boraðir kljásteinar eins og þeir, sem hér
fundust, séu fornlegir, og raunar hafa þeir óvíða fundizt. Algengast
er að kljásteinar séu náttúrlegir hnefastórir basaltsteinar, kollóttir og
með sjálfgerðum götum. Boraðir kljásteinar hafa fundizt í Stöng og
a. m. k. einn í (órannsakaðri) nafnlausri rúst í Fossárdal. Hér fer á
eftir nákvæm skrá um alla hluti, sem í bænum fundust, svo og sýnis-
horn efna, sem með voru tekin frá rannsókninni. Öll mál eru í senti-
metrum. (Hlutir þeir, sem ekki hafa þegar fengið tölumerki Þjóð-
minjasafns, komu allir til safnsins 1. 10. 1960).
Brýnisbrot, nokkuð eytt, 8,6 að 1., 2,5 að br. í annan endann, 1,4
í hinn, 1,2 að þykkt (Þjms. 14072).
Brýnisbrot, talsvert eytt, 8 að 1., 1,4 að br. í annan endann, 1
í hinn, 0,8 að þykkt (Þjms. 14123).
Brýnisstúfar, 5 talsins, allir úr ljósu fremur grófu og linu flögu-
bergi, lengd þeirra er 10,3, 7,3, 6,7, 4,9, 3,0 (Þjms. 15206a-e).
Brýnisbrot, dökkgrátt og fíngert (heinbrýni), ferstrent, mest 1
á annan veg en 0,7 á hinn, lengd 6,2; á öðrum endanum er brotsár,
og við hann hefur verið byrjað á að bora gat, en hætt við.
Hnífsblað úr járni, 5,5 að 1., 1,5 að br. um miðju, en mjókkar til
enda (Þjms. 14122).