Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 129
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
133
STOKKAR
1. N. 500. (X 170). Stokkur úr furu. Sjálfur stokkurinn eintrján-
ingur. Líkist trjábol, sem sniðið hefur verið utan úr eftir endilöngu,
og snýr sú hliðin upp. Dýrshaus á öðrum enda, hinn endinn kúptur.
Hefur haft stórt og lítið hverfilok, með tappa. Næstum sívalur að
innan. L. um 44.5. Br. um 14.5. H. um 13.
2. Stokkurinn hefur víkkað sökum sprungna á báðum göflum,
svo lokið er orðið of mjótt. Minni sprungur að auki. Flísar dottnar
úr. Hausinn slitinn að ofan. Litla lokið og tappann vantar. Brún-
bæsaður.
3. Djúp skora neðan á dýrshausnum. Einungis flöt tunga í gin-
inu. Stórt, kringlótt gat gegnum það við munnvikin. Ristar bog-
línur yfir nösum og augum. Lítil, hvöss eyru liggja aftur. Alldjúp,
kringlótt hola boruð á hliðina, undir hvoru þeirra. Á enninu mótar
fyrir skrauti, er það eins og hálfhringur með kórónu. Augun frem-
ur stór, og í laginu, eins og teygður sporbaugur. Á lokinu áletrun í
einni línu, bókstafirnir háir, af einskonar höfðaletri, með anga, sem
grípa hver í annan (eins og á skáp í Þjóðminjasafni íslands, Þjms.
11006). — Allvel gert.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Virðist letrað oooos! (Safnskýrslan kallar það aðeins flúraðar
skrautmyndir, sem líkjast smástöfum.)
6. Á miða í stokknum: Hærdekar af Træ. Staðarhraun. ísland.
í safnskýrslunni eru sömu upplýsingar, en reyndar með spurningar-
merki við ,,Hærdekar.“
7. Safnskýrslan: 18. öld.
8. Safnskýrslan: Tidsskr. f. Kunstindustri 1887, mynd 20.
1. 0. 316. (X 292). Stokkur úr furu. í laginu eins og fiskur, og
er alllangt gengið í náttúrustælingu. Mun hafa verið á honum renni-
lok að neðan, sem dregið var frá annarri langhlið. Yfir því fer-
hyrnt rými, sem hefur verið hólfað sundur með skilrúmum. L. um 39.5.
Br. um 7. H. 5.
2. Nokkrar flísar hafa dottið úr sporðugganum. Dálítið maðk-
smoginn. Eitt langskilrúm og eitt þverskilrúm vantar. Langskilrúm-
ið, sem nú er í stokknum, er nýtt (smáhólfið, sem það myndar, er
grynnra en hitt). Leifar af blágrænni málningu.
3. Ristur munnur, augu, tálkn og röndóttir uggar. Auk þess fimm