Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 161
FUNDIN ÞJÓÐHILDARKIRKJA
165
leik, sagðist Motzfeldt hafa lesið þetta í útdrætti úr Eiríks sögu
rauða og Fóstbræðra sögu, sem Knud og Vilhelmine Rasmussen
sneru á grænlenzku og gáfu út í snoturri, myndum prýddri bók árið
1911.4) Motzfeldt sagði mér frá því, að Grænlendingar fyndu stund-
um ýmsar fornleifar í hinum gömlu rústum og í grennd við þær.
Meðal annars hefðu þeir fundið viðarbút með útskurði og ýmsa
smáhluti. Þegar ég innti hann eftir því, hvað orðið hefði um þessa
gripi, sagði hann, að sumir hefðu lent í glatkistunni, en aðrir hefðu
verið sendir til þjóðminjasafnsins í Kaupmannahöfn. Af þessu til-
efni ræddum við Motzfeldt margt um nauðsyn þess að geyma slíka
hluti sem vendilegast, og virtist mér hann hafa góðan skilning á
því. Enn fremur gat Motzfeldt þess, að þeir Bratthlíðingar hefðu
fundið á afréttarlöndum sínum rústir, sem hann taldi hvergi skráðar
og fornleifafræðingum mundi ókunnugt um. Sagði hann, að veggir
sumra þessara rústa væru seilingarháir frá jörðu. Eina forna bæjar-
rúst kvað Motzfeldt hafa farið forgörðum, er Bandaríkjamenn gerðú
Stokkanesflugvöll (Narssarssuak) á styrjaldarárunum. Þar mun
hann hafa átt við rústir bæjarins í Akuliarusek við „Stokkanesá“
(rúst 45 í Eystribyggð).5)
Á siglingu okkar um Eiríksfjörð gat okkur Motzfeldt að sjálfsögðu
ekki órað fyrir því, að fáum dögum síðar ætti fyrir honum að liggja
að bjarga frá vísri eyðingu einhverjum sögulegustu minjum, sem
fundizt hafa á Grænlandi. Frá því happaverki sínu skýrði Motzfeldt
mér í bréfi, dags. 15. des. sl. Þar sem hér er um að ræða frásögn
sjálfs finnandans af hinum merka fornleifafundi, mætti þykja til-
hlýðilegt að varðveita hana á síðum Árbókar Fornleifafélagsins,
og fer hún hér á eftir:
„ . . . Ég ætla að reyna að skrifa yður nokkrar línur til þess að
segja frá nýjum fornleifafundi í haust hér í K’agssiarssuk. Ég þyk-
ist vita, að þér hafið lesið í [Reykj avíkur] blöðunum frásögn danskra
blaða um, að Þjóðhildarkirkja sé fundin.
Þér vitið ef til vill, að ætlunin var að reisa heimavistarskóla í
K’agssiarssuk fyrir skólabörn í K’agssiarssuk-sveit. Þegar verka-
mennirnir komu, tóku þeir jafnskjótt til við að grafa fyrir grunni
4) TitiII bókarinnar: Kavdlunátsiait kalátdlit nunáliarKárnermingnik OKa-
lugtualiaisa ilait.
5) Sjá Meddelclser om Grönland XVI, 320.