Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 89
ÍSLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
93
fyrir utan áletrunina hefur rómanskan vafteinung, sem ætla verður
að hafi byrjað til hægri (miðað við áletrun þessa), þar sem stóra
stykkið vantar. í hverri bylgju er grein, sem verður að sívafningi.
Víðast endar hann á rósettu, (en á einum stað á margflipa blaði, og
á öðrum á kringlu, sem fyllt er með hreisturflögum og hryggjum á
milli þeirra.) Minni greinar spretta einnig út frá sívafningunum.
Ganga þær undir og yfir aðalstöngulinn, og mynda bandfléttur
ásamt öðrum smágreinum. Kreppast dálítið efst og enda á kringl-
óttum hnúð. Við efri og neðri brún reitsins eru víða allstór blöð
báðum megin á stönglinum, oddhvöss eða tungumynduð. Hæð
skreytisins yfir skurðflöt fáeinir mm. Breidd stönglanna um 5 mm.
Hafa þeir sums staðar innri útlínur. Höft við greinaskilin. Rósett-
urnar aldrei eins, heldur gerðar ólíkar innbyrðis með litlum skor-
um. Við neðri brún er höfðaleturslína, sem byrjar þar sem stykki
vantar í f jölina. — Laglega unnið. Vafteinungurinn fallegur og þrótt-
mikill.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Höfðaleturslínurnar: uertu|Hia|oss|herra|þuikelld
ængenne|ligur|þessa|nott|og!alla|
6. Á miða á bakhlið stendur m. a.: Dalasýsla, fslandi. Og í safn-
skýrslunni aukþess: Keypt á 10 kr. af Feddersen fiskveiðaráðunaut.
7. Safnskýrslan: 18. öld.
8. Safnskýrslan: Mynd í Tidsskr. f. Industri 1903,, bls. 147 (mynd
16, til vinstri á myndinni).
1. 0. U85. (X 182). Rúmfjöl úr furu. L. 103. Br. 19.5. Þ. 1.2.
2. Fáeinar flísar dottnar úr, fjölin dálítið maðksmogin. Brún-
bæsuð. 63. mynd.
63. mynd.
3. Útskurður á framhlið. Höfðaleturslínur meðfram efri og
neðri brún, við enda neðri línunnar er rist ártal. Annars upphleypt
jurtaskreyti, allt að 8 mm á hæð, flatt að ofan. Vafteinungur byrj-