Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 103
ISLENZKUR TRÉSKURÐUR 1 ERLENDUM SÖFNUM
107
endana, sumir með rúðum innan við. Auk þess hornréttar línur með
fáeinum skorum. Báðar næstyztu fjalirnar hafa einnig í miðju
tvo rista, sammiðja hringa.
Framhlið stólbaksins: Efst á bakslánni er bandflétta. Því næst
hringar með myndum í (upphleypt, hæðin allt að 5 mm). 1 fyrsta
hring er konungur, í öðrum lúðurþeytari með skjöld, í þriðja biskup,
í fjórða kórdrengur með reykelsisker, í fimmta þrír prestar. Jurtir
og myndir milli hringanna. Rimlamir eru gerðir úr jurtahlutum,
en miðja hvers þeirra myndar hátt upphleypt mannshöfuð. Er þar
m. a. höfuð biskups og konungs. (Þykkt rimlanna allt að 3.7 sm.)
I hinu upphleypta skrauti á þverriminni (hæð 2—5 mm) er, talið
frá vinstri: jurtateinungur, bandflétta, myndir (vængjaður dreki
og maður með horn við munn sér), jurt, bönd, teinungur. — Ágæt-
lega skorið (sbr. hinn Grundarstólinn, Þjms. 10925).
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Áðurnefndar rúnir aftan á bakslá og á afturstuðlum eru smiðs-
merki, hlutar stafrófs. Sjá MÞ í Árbók 1917, bls. 5—7, Bæksted
bls. 162—163.
6. Safnskýrslan (um þennan grip og ýmsa aðra) : Etatsráð
Finnur Magnússon afhenti. Honum fól til ráðstöfunar Ólafur Briem
timburmeistari á Grund í Eyjafjarðarsýslu. Hinn síðarnefndi keypti
á uppboði á hinum fornu gripum kirkjunnar á Grund, sem nýlega
hafði verið endurbyggð.
8. Matthías Þórðarson: Grundarstólar. Árbók hins íslenzka forn-
leifafélags 1917, bls. 1—8 (og teikningar). Anders Bæksted: Is-
lands Runeindskrifter. Bibliotheca Arnamagnæana Vol. II, Kbh.
1942, bls. 158—159 og 162—166, myndir 78 og 79, (með skrá yfir
fyrri skrif um báða Grundarstólana).
SKÁPAR
1. j. U2h- Skápur úr furu. Eins og ílangur kassi með útskornu
loki á. Lokið mynda yfirbrík, tvær hliðarfjalir, hurð og undir-
brík. Taka bríkurnar lítið eitt út yfir brúnir á hliðum og endum.
Járnlás (bilaður). Skráargat, „á höfði“. Gamlar, bilaðar járn-
lamir og aðrar nýrri rétt innan við. Tvær hillur í skápnum. Er
þeim fest, ásamt botnfjöl og toppfjöl, með stórum, ferstrendum