Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 92
96
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
1. 0. U87 b. (X 195). Rúmfjöl úr furu. Nokkuð ber á nibbum og
tungum á efri rönd. L. um 110. Br. 20.7. Þ. 1.4.
2. Sprungur við báða enda og flísar dottnar úr efst. Brúnbæsuð.
3. Brúnirnar strikheflaðar á framhlið, útskurður innanvið. Skipt-
ist hliðin með rákum og ristum línum í sex reiti. Af þeim eru fimm
hér um bil ferningslaga, en sá sjötti (lengst til vinstri) er ferhyrnd-
ur. Skreytingin í reitunum er sem hér segir, talið frá hægri:
1) Bandmunstur gert úr fjórum samþræddum hringum. Bak við þá er
valhnútur, og í öllum hornum reitsins er bandlykkja með íþræddu
bandi. Eru þessi síðasttöldu bönd liðlega 1 sm á br., en þau sem eru
í hringum og valhnút um 7 mm. Öll hafa þau innri útlínur. Lágt
upphleypt. 2) Valhnútur og hringur þræddur í lykkjur hans. Breidd
bandanna um iy% sm. Innri útlínur. Lágt upphleypt. 3) Þrjár línur
með lágt upphleyptum latneskum bókstöfum. 4) Bandfléttuskreyti.
Er eitt band lagt í ferhyrning og tvö tvívegis milli horna í reitnum.
Ganga þau undir og yfir hvert annað í miðju. Innri útlínur. Grunn-
urinn strikaður (að nokkru leyti rúðustrikaður). Lágt upphleypt.
5) Ristur hringur fylltur munstri. Er það gert úr hringum, sem
skera hver annan og í eru sexblaða skipaskurðarrósir. I þríhyrndu
reitunum milli rósablaðanna er ýmist ein stór eða þrjár litlar kíl-
skurðarstungur. Utan við hringinn, í hornum hins ferhyrnda reits,
eru margar ristar, samsíða línur, hornréttar hver á aðra. 6) Band-
fléttuskreyti svipað einföldu lérefti að gerð. Böndin um 2 sm á br.
Innri útlínur. Næst fjalarenda er til uppfyllingar lóðréttur, mjög
einfaldur vafteinungur, að stofni til sléttur og hlykkjóttur stöng-
ull. I reitunum við hlykkina er skörðótt brún næst stönglinum og
líkist hver reitur þannig margflipa blaði. — Sómasamlega unnið.
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. IESVS
VERTVM (Gerð bókstafanna með 17. aldar blæ.)
IERHIA
Á bakhlið hefur verið byrjað á ýmsum bókstöfum og táknum.
6. Safnskýrslan: Skógarströnd, íslandi. Keypt á 3 kr.
7. Safnskýrslan: Um 1800.
1. 0. U88 a. (X 319). Rúmfjöl úr furu. L. 117. Br. 18.6. Þ. 1.7.
2. Stór sprunga (haldið saman með trélöppum á bakhlið) og
nokkrar minni sprungur. Smáflísar dottnar úr. Brúnbæsuð á fram-
hlið.