Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 31
BÆR 1 GJÁSKÓGUM 1 ÞJÓRSÁRDAL
35
rauði og kol ganga einnig inn undir vestari dyrakampinn. Það er
þannig öruggt, að á þessum stað hefur járngerð verið höfð um
hönd, áður en kamarinn var byggður.
V. Fjós. Hús það, sem Brynjúlfur Jónsson sá í Gjáskógum og
taldi vera fjós, er fyrir austan bæjarhúsin; eru 10—15 m frá austur-
stafni skála að fjósveggnum. Það snýr upp í brekkuna eins og búrið
og kamarinn, þvert á stefnu skála og stofu. Húsið mátti heita hálf-
blásið, þannig að veggir stóðu alls staðar upp úr, en tóftin sléttfull
af hinum alþekkta hvíta vikri. Grafinn var fyrst skurður um húsið
25. mynd. Þverskurtiur af kamri, fremst. —
Section through lavatory next to door, looking
out; under a flagslone a heap of bog iron ore.
þvert, og sást þá mjög greinilega afstaða hvíta vikurlagsins til tóft-
arinnar (3. mynd). Milli hvíta lagsins og gólfsins var alls staðar
moldarlag, sem virtist vera hvort tveggja, rofmoldir úr þaki og
veggjum og áfok. Moldarlag þetta var um 25 sm í miðjunni, en þykk-
ara úti við báða veggi. Hvíta lagið ofan á því var hins vegar þykk-
ast í miðjunni, um 25 sm, en þynnra út til veggjanna, því að þeir voru
ekki það háir, að þeir veittu meira skjól. Það er alveg bersýnilegt,
að hús þetta hefur verið búið að vera lengi opið og yfirgefið, þegar
hvíta vikurskaflinn lagði yfir tóftina, eða þann tíma sem það hefur
tekið moldarlagið að myndast. Kemur hér hið sama í ljós og í bænum.
Allir veggir þessa húss stóðu upp úr, eins og þegar er sagt, en
voru mjög snaraðir og hrundir. Höfðu þeir verið hlaðnir úr frem-
ur stórum steinum. Húsið er 12,5 m milli gafla að innanmáli, ítæpir
3 m að breidd við innri gafl, en mjókkar nokkuð fram eftir, og fremst
er það um 2,5 m (26. mynd). Vegglínurnar eru ekki alveg beinar,
enda hafa þær sjálfsagt skekkzt nokkuð frá því, sem var í upphafi.