Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1961, Blaðsíða 132
136
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
4. Hvorki dagsetning né ártal.
5. Bókstafirnir á botninum: SEDA.
6. Á miða í stokknum: Kartekasse. Isafjord. Island. 1 safnskýrsl-
unni upprunalega þetta sama, en seinna hefur verið strikað yfir
„Karte“.
7. Um 1800.
1. 0. 328. Stokkur úr birki. Sjálfur stokkurinn eintrjáningur.
Ferstrendur í þverskurð. Rennilok með útstæðu handfangi. Á
skammhliðinni undir því er upphleypt mannsandlit. L. 19.7. Br. 9.
H. 7.2.
2. Dálítið slitinn og flísar dottnar úr. Ómálaður.
3. Útskurður á öllum hliðunum fjórum og ofan á lokinu. Höfuðið
á annarri skammhliðinni gengur fram úr henni svo nemur um 2 sm.
Mjó, grafin augu, framstæð haka og munnur, nefið fremur flatt
(hefur brotnað af því). Hvorki hár né eyru. Báðum megin við þetta
andlit eru ristir bókstafir og tölustafir, þ.á.m. ártal. Á báðum lang-
hliðum eru tvær línur með ristum, latneskum bókstöfum (og tölu-
stöfum). Þrjár línur á annarri skammhlið. Kílskurðarraðir og ristar
línur prýða handfang loksins, auk þess rúðustrikun. Að öðru leyti er
á innri, lækkuðum grunnfleti á lokinu upphleypt skreyti í mjóum og
sléttum ramma, hæð skreytisins 1—2 mm. I miðju grannur hring-
ferill og fangamark í hringnum. Tvær kílskurðarraðir undir bókstöf-
unum. Fremur eðlilega útlítandi jurtir spretta frá annarri langhlið
og ná yfir svæði báðum megin hringsins. Samhverf niðurröðun.
Stönglarnir grannir (yfirleitt undir 3 mm.) Blöðin oddhvassir flipar,
oftast saman í skúfum. Sum smáblöðin fjaðurstrengjótt. — Góð
heildaráferð, en dálítið stirðleg. Skurðurinn á hliðunum virðist frum-
stæðari og grófari en skurðurinn á lokinu.
4. 1859.
5. HVUR,SEM,SK A,AD, LATA, DA,LESA,ÞETTAD,7,
ODAR, STOKKIN J, HAN, 8SK 1897139,9141318,41,
ILDINGA, E D, 18, D 1859
6. Safnskýrslan: Nr. 897 í safni I. V. Schmiths heildsala.
7. Safnskýrslan: Lykillinn að leyniletrinu er A=l, B=2, C=3,
o. frv., má því lesa alla áletrunina: Hvur sem skoðar stokkin a að
láta í han 8 skildinga eða lesa þettað: g(öfuga) signi ions d(óttir)
á; (Með blýanti á spássíu: G=Guðrún(?).)