Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 54
58
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
aðeins hægt að mæla 5 þessara hálfkvartila. Þau eru að 1. 36,45 sm samtals og
samkvæmt því ætti öll þessi alin að hafa verið 58,32 sm.
Kvarði þessi hefir brotnað fyrir löngu, en verið spengdur með 2 látúnsræmum,
sem stallaðar hafa verið í efri og neðri brún. Aftur hefir kvarðinn brotnað á sama
stað, og er nú aðeins eftir hluti af efri spönginni, en brotið framan af kvarðanum
er týnt.
Ekki fer á milli mála, að kvarða þennan hefir Filippus Bjarnason á Efri-Hömrum
skorið, enda er kvarðinn merktur honum og er ágætt smiði. Má vera að hann hafi
borizt út í Hrunamannahrepp með föður eigandans, Guðmundi Brynjólfssyni frá
Keldum á Rangárvöllum.
Frú Hulda Bergmann Sigfúsdóttir, Grœnuhlíö 19, Reykjavíh. Kvarði úr mahogný,
talsvert áþekkur Sk. nr. 1807 og kvarða Böðvars Guðmundssonar, enda eftir sama
mann. Kvarðinn skiptist eins og þeir í handfang og mælikvarða. Handfangið myndast
af gegnskornum laufavindingum og myndast lykkja aftast á því. Alls er kvarðinn að
i. 72,5 sm og handfangið að 1. 13,6 sm, h. 3,7 sm og þ. 1,9 sm. Á handfanginu
er sléttur flötur og á hann skorið með latneskum upphafsstöfum fangamark
EID. Aftast á annarri hlið mælikvarðans er skorið með gotnesku letri ANNO,
en aftast á hinni með latneskum upphafsstöfum MABSVI (M = 1000, A = 500,
B = 300, S = 70, VI = 6, 1876). Annars eru hliðar kvarðans að mestu skreytt-
igaWlillUMMgHMi
3. mynd. Kvaröi Huldu Bergmann Sigfúsdóttur. — Ljósm. G. G.
ar laufamunstrum, en þó eru skorin tvö lágfætt og ferfætt dýr rétt við letrið.
Dýrin eru alllík, en þó ekki eins, með stórt höfuð og langa skolta og með
hala, sem endar í laufavafningum. Á enda kvarðans eru sneiðingar á báðum
hliðum og er látúnsplata brotin yfir endann og negld á sneiðingarnar, svo fram
kemur eins konar endabjörg á kvarðann. Á annarri brún kvarðans er mörkuð alin,
sem endar uppi á handfangi við þrjá látúnsnagla. Allri er alin þessari skipt í hálf-
kvartil, og auk þess er fet markað með þremur nöglum og efst kvartil á
sama hátt, en öll hálfkvartilin með einum nagla. Aftasta kvartili er skipt í
6 þumlunga á sama hátt. Alin þessi er að 1. 62,4 sm, fetin 31,25 sm og 31,15 sm, kvart-
ilin 15,5 sm —15,7 sm og þumlungarnir 2,50 sm — 2,64 sm. Á gagnstæða brún er mörk-
uð önnur alin frá enda upp að handfangi. Þeirri alin er skipt í kvartil fremst með
einum, en ofar með 2 hliðstæðum látúnsnöglum. Alin þessi er að 1. 58,2 sm og
kvartilin 14,5 sm. Á miðjum kvartilabilunum eru óljósir punktar og hefir smiður-
inn líklega ætlað að merkja þarna hálfkvartil, en hætt við það. Þessi bil eru
mjög nærri 7,27 sm 1. Kvarði þessi er greinilega eftir Filippus Bjarnason eins og
kvarðarnir Þjms. 1051, Sk. 1807, og kvarði Böðvars Guðmundssonar. Frú Þorbjörg
Bergmann móðir núverandi eiganda eignaðist kvarða þennan, en ekki er vitað
hvaðan.
Hér hefir verið lýst 38 kvör'ðum, sem á eru mörkuð 50 alinmál æði
mislöng. Stytzt er alinmál á BHS. S. 295, kvarða Finns frá Kjörs-
eyri, sem hann nefnir ísl. al., 47,1 sm, en lengst á Þjms. 1051 og
Sk. ótölus., 63,2 sm. Til þess að gefa hugmynd um lengdarskiptingu
alinmálanna, hefi ég gert meðfylgjandi mynd, þar sem hver súla
merkir það alinmál, sem á hana er skráð, og er þá miðað við að allir
aftari endar þeirra liggi samhliða. Kemur þá allur lengdarmunurinn