Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 118
122
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Sigurjón Erlingsson hefur safnað örnefnum í Gaulverjabæjar-
hreppi, og er því nær lokið.
Eiríkur Einarsson hefur unnið að söfnun í Ölfusi.
Gísli Sigurðsson í Hafnarfirði hefur nærri lokið söfnun í Selvogi.
Ari Gíslason hefur haldið áfram endurskoðun á einstökum hreppum
í Mýra- og Borgarfjarðarsýslu.
Jóhann Bjarnason hefur annazt endurskoðun í Dalasýslu.
Jóhann Hjaltason fór yfir söfn úr Sléttuhreppi.
Pétur Sæmundsen skila'ði söfnum úr 7 hreppum í Húnavatns-
sýslum.
Jóhannes Óli Sæmundsson hélt áfram endurskoðun í Svalbarðs-
strandar- og Grýtubakkahreppum."
Hér fyrir utan er svo ýmislegur safnauki, sem of langt yrði upp
að telja. Segja má, að endurskoðunarstarfi'ð gangi vel, svo og sú
viðleitni að fylla smátt og smátt upp í þær eyður, sem enn voru eftir,
en þó er því ekki að leyna, að mikið vantar á, að hér sé lokatakmarki
náð. Verður að leggja kapp á að halda verkinu áfram eftir þeirri
meginstefnu, sem fylgt hefur verið þessi tvö síðustu ár.
Viðhald gamalla bygginga.
1 framhaldi af síðustu ársskýrslu skal fyrst frá því skýrt, að hinn
9. febr. var undirritaður sá samningur milli ríkisstjórnarinnar og
eiganda Viðeyjar, að hinn síðarnefndi seldi ríkinu Viðeyjarstofu
ásamt um það bil 11 hektara afmörkuðu landi kringum hana eftir
mati. Var síðan skipuð matsnefnd, og lagði hún fram tillögu sína
seinna á árinu. Þótti ríkisstjórninni matið of hátt og skaut málinu
til yfirmatsnefndar, en um áramót var úrskurður í málinu enn ekki
kominn, en talið var að hans væri þá skammt að bíða og ekki ósenni-
legt, að matið lækkaði allnokkuð. En hvað sem því líður, má segja að
mikill sigur hafi unnizt, er samið var um kaupin, því að þaðan af varð
ekki aftur snúið. Standa nú vonir til, að hægt verði að fara að gera
sómasamlega við Viðeyjarstofu, og einnig að nú komi að því, að ríkið
festi einnig kaup á Nesstofu, eins og raunar hefur lengi staði'ð til.
Snemma sumars var auglýst eftir mönnum til að vinna við hin
gömlu torfhús, sem safnið hefur á sínum vegum og mörg þurftu á
verulegum viðgerðum að halda. Réðust til þessa starfs tveir kennarar
úr Reykjavík, Theodór Daníelsson og Njáll Guðmundsson, og unnu
að þessu verkefni í hálfa þrettándu viku. Þykir rétt að birta hér