Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 88
92
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
Eirstungusmiðurinn hefur merkt sér myndina neðst til hægri á
þennan hátt: Meno Haas. sc. 1778. Mun hann vera Johan Meno Haas,
f. 1752, d. 1833.14 (4. mynd).
Þessi mynd er fastur punktur til viðmiðunar. Hún hefur eflaust
verið gerð 1778, þegar kirkjusagan kom út eða rétt áður og þá að
sjálfsögðu eftir fyrirmynd. Hún sýnir biskupinn fimmtugan að aldri
eða árið 1754, en það ár var Finnur Jónsson í Kaupmannahöfn til
þess áð taka biskupsvígslu. Það má því telja mjög líklegt, að þá
hafi verið gerð mynd af honum í Höfn, eins og fleiri biskupar létu
gera við sams konar tækifæri. Sú mynd hefur þá verið til í eigu Finns
biskups eða ættmenna hans og verið lánuð til þess að gera eirstung-
una eftir henni. Eins og kunnugt er, vann Hannes Finnsson, síðar
biskup, að útgáfu kirkjusögunnar fyrir föður sinn, svo að hér voru
hæg heimatökin. Nú er aðeins kunnugt um eina mvnd, sem gæti verið
fyrirmynd eirstungunnar, og það er málverk það, sem lýst er hér
næst á eftir.
2. Mannamyndadeild Þjóðminjasafnsins nr. 4678: Olíumálverk á
striga, sem strengdur er á blindramma, í gylltri strikaðri umgerð.
Málverkið er ferkantað, 23,4x29,0 sm að stærð, umgerðin 5 sm
breið. Myndin er brjóstmynd, biskup er sýndur í hempu, með pípu-
kraga og hárkollu, horfir fram, en snýr þó nokkuð til hægri. Mynd
þessi var í Frederiksborgarsafni (Det nationalhistoriske museum pá
Frederiksborg) ög bar númerið 2420, en aftan á umgerðinni stendur
B. Nr. 2259. Matthías Þórðarson segir í safnskýrslu, að umgerðin
muni upprunalega hafa verið smíðuð utan um aðra mynd minni.
Matthías fór þess á leit við stjórn Frederiksborgarsafns í bréfi dags.
1. júní 1927, áð Þjóðminjasafninu yrði eftirlátin myndin. Við þessu
var orðið, og tók Matthías sjálfur við myndinni um áramótin 1927—
1928,15 og kom hún til safnsins 7. jan. 1928.
Matthías Þórðarson getur þess ekki í safnskýrslu, hvernig Frede-
riksborgarsafn hafi eignazt þessa mynd. Hins vegar segist Helge
Finsen, arkitekt í Kaupmannahöfn, (í bréfi til mín dags. 1. 2. 1963)
hafa fengið að vita hjá safninu, að það hefði keypt hana 1917 af Jóni
Finsen klausturhaldara á Vallo, (sem kallaður var „Tykke Jón“ í
fjölskyldunni). Faðir Jóns þessa Finsens var Oluf Finsen stiftsfor-
valter á Vallo, bróðir Hilmars landshöfðingja. Líklegt er, að Oluf
14 Dansk biografisk Leksikon (1936) VIII, bls. 547.
15 Sbr. viðtal við Matthias Þórðarson, Morgunblaðið, 18. janúar 1928.