Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 129
SKÝRSLA UM ÞJÖÐMINJASAFNIÐ 1967
133
honum einkum Sveinbjörn Rafnsson fornfræ'ðastúdent, Guðmundur
Jónsson frá Kópsvatni og Christopher Hale frá Chicago, en auk þess
af safnsins hálfu um nokkurt skeið Gísli Gestsson og Halldór J.
Jónsson.
Dagana 13,—16. febr. unnu Þorkell Grímsson og Gísli Gestsson að
því að taka upp mannabein í gamla kirkjugarðinum við Aðalstræti í
Reykjavík. Tóku þeir þar upp 6 grafir og afhentu beinin Jóni Steff-
ensen prófessor. Rask þetta þurfti að gera í sambandi við nýbyggingu
Landssímans, og er að þessu vikið í síðustu ársskýrslu.
Gísli Gestsson fór til Mývatnssveitar 24. ágúst og rannsakaði forn-
mannakuml hjá Grímsstöðum. Einnig fór hann tvær ferðir í Þjórs-
árdal til eftirlits með Stöng og fleiri minjum. í Stöng var enn sem
fyrr mikil aðsókn, og skráðu sig þar 7311 manns í gestabók, en vafa-
laust hafa miklu fleiri komið þar.
Gísli Gestsson og Þór Magnússon rannsökuðu helli skammt frá
Grindavík, þar sem fundust mannsbeinagrind og hnífur og belti, eins
og sagt var frá í blöðum. Ekki er ljóst, frá hvaða tíma þessar leifar
eru.
Dagana 17.—18. ágúst voru Þór Magnússon, Sveinbjörn Rafns-
son og Þórður Tómasson í rannsóknarferð í Skaftafellssýslu, einkum
þó til þess að líta eftir fornminjum, sem fundust í Skaftárdal, en
litið var þó eftir mörgu fleira í leiðinni. Þór Magnússon skrifaði ítar-
lega skýrslu um þessa ferð. Aðra könnunarferð fóru Þór og sam-
starfsmenn hans í Hvítárholti upp á Hrunamannaafrétt og litu þar
eftir mörgum fornum rústum, en sér í lagi áður lítt þekktri rúst
inni við Hvítá.
Þjóðminjavörður fór tvær eftirlits- og rannsóknarferðir, og var
hin fyrri dagana 13.—18. júlí. Fór hann um sýslurnar norðanlands
og kom víða við til þess að ráða ýmsum ráðum. í þessari ferð lauk
hann við að rannsaka fornmannsgröf á Brandsstöðum í Blöndudal,
sem byrjað hafði verið á vorið 1965, en varð ekki lokið þá vegna
klaka í jörðu.
Seinni ferðin stóð yfir dagana 8.—15. sept. og var með í þeirri ferð
Halldór J. Jónsson safnvörður. Megintilgangur ferðarinnar var að
kanna mannaverk í Papey eftir því sem auðið yrði, og voru rann-
sóknarmennirnir um kyrrt í Papey 8.—12. sept. Skoðuðu þeir allar
mannaminjar í eynni og grófu nokkuð, en veður var óhagstætt og
tími naumur, enda varð niðurstaðan sú, að enn þyrfti fleira að rann-
saka í Papey, einkum þó tvo staði, sem annar nefnist Goðatættur,
en hinn Undir Hellisbjargi. Á báðum stöðum eru forvitnilegar rústir