Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1968, Blaðsíða 86
90
ÁRBÓK FORNLEIFAFÉLAGSINS
bezt að segja eru ekki miklar líkur til að hún sé lík honum, eins og
allt er í pottinn búið.
FINNUR JÓNSSON
Finnur Jónsson, f. 1704, d. 1789, var biskup í Skálholti 1754—1785.
Af honum eru til þrjár gamlar myndir, sem sýnilega eru allar af
einum og sama uppruna, og frá þeim eru runnar myndir þær allar,
sem birtar eru í ritum, einnig steinprentuð mynd, sem gefin hefur
verið út sérstaklega, gerð hjá Th. Berghs litografiske Institut, til m.
a. í Þjóðminjasafni, Mannamyndadeild nr. 78. Til er svo enn ein mynd,
sem á að vera af Finni biskupi, þótt vafasamt sé, eins og síðar verður
sagt.
Ekki er Ijóst í smáatriðum, hvernig háttað er sambandi myndanna
þriggja. Það skiptir að vísu ekki meginmáli, þar sem allt er þetta
ein og sama myndin, þegar öllu er á botninn hvolft, og vissulega eru
þessar myndir af Finni biskupi og sennilega líkar honum,13 en rétt
er eigi að síður að gera grein fyrir hverri mynd fyrir sig og reyna
að kanna, hvernig þær standa af sér sín í milli.
1. Rétt er að telja hér fyrsta eirstungumyndina, sem birtist framan
við 4. bindi hinnar miklu kirkjusögu Finns biskups (Historia ecclesia-
stica Islandiæ, Kph. 1772—1778), einnig til á lausum blöðum, sbr.
Mannamyndadeild, nr. 5758. Myndin er í sporbaugsreit, en neðan við
er skjöldur með þessari áletrun:
FINNUS IOHANNÆUS
S.S. Theol. D. & Episc. Skalholt.
Nat. 16. Ian. 1704. anno æt. 50.
Symb. Fide justus salvatur.
Séra Sæmundur Hólm var þó ekki ánægður með eirstungumyndina framan við
kirkjusöguna og telur sjálfan sig hafa gert betri mynd af Finni biskupi. 1 bréfi
til Hannesar biskups Finnssonar, dags. í Kaupmannahöfn 13. april 1779, segir
hann:
„Ekki er gott það portrett eftir biskupi herra Finni, og það kann ekki líðast;
látið mig fá það eg gjörði til hans í skóla, þvi ei er það mjeg slæmt; eg vil sjá
til þess“. Lbs. 27 fol., sbr. Islenzkir listamenn I, bls. 15—16.
Ekki þekkist nú þessi mynd séra Sæmundar, og ekki er víst, hversu mikið
er að marka dóm hans um eirstungumyndina. Séra Sæmundur fór í Skálholts-
skóla 1766 og útskrifaðist 1771.