Ársrit Ræktunarfélags Norðurlands - 01.01.1926, Qupperneq 15
17
IV. Frumvarp til reglugerðar um mælingar jarðabóta
samkv. 8. gr. fjelagslaga og leiðbeiningar.
Nefndin Ieggur til að frumvarpið verði samþykt
með svohljóðandi breytingum:
5. gr. verði svohljóðandi:
Búnaðarfjelögin á fjelagssvæðinu skulu gjaldfrí
fyrir þá meðlimi sína, sem ekki hafa jarðarafnot.
5. gr. verði 6. grein.
Nefndin telur æskilegt að fjelagsstjórnin taki til
greina óskir búnaðarfjelaganna um fjölgun trún-
aðarmannanna«.
Síðan var gengið til atkvæða um einstaka liði nefndar-
álitsins og var:
I. liðurinn samþ. með öllum greiddum atkvæðum.
II. liðurinn sömuleiðis.
III. liðurinn eða þær breytingar, sem hafa verið sam-
þyktar á undanförnum fundum, samþykt í einu
hljóði og verða lögin í heild sinni birt í næsta
Ársriti Ræktunarfjelagsins.
IV. Iiðurinn samþyktur óbreyttur, að öðru leyti en
því, að við 5 grein reglugerðarinnar komi þessi
viðaukatillaga og bætist aftan við greinina »eða
land til ræktunar«.
17. Kaup á tilbúnum áburði, kraftfóðri, verkfærum o.
fl. Sig. Sigurðsson búnaðarmálastjóri hreyfði þessu máli.
Taldi hann ekkert skipulag á sölu þessara vörutegunda,
eins og nú stæði, en þyrfti, ef vel ætti að vera, að kom-
ast í fast horf sem fyrst, en til þess væru þrjár leiðir.
1. að láta fyrirkomulagið vera eins og nú er (frjálsa
verslun). 2. að fela Sambandinu kaup á þessum vörum
og 3ja að mynda sjálfstæða deild, er væri undir stjórn
Búnaðarfjelagsins, sem annaðist þessi innkaup. Töluverðar
umræður urðu um þetta mál og hnigu allar í þá áit að
2