Morgunblaðið - 30.05.2002, Blaðsíða 59
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 59
Kringlunni, sími 553 2888.
Brúðarskór
Teg.: LN-022
Stærðir: 36-41
Kr. 11.250
Teg.: LN-016
Stærðir: 36-41
Kr. 11.490
GLÆSILEGT ÚRVAL
V O R / S U M A R 2 0 0 2
Kringlunni 8-12, sími 568 6211
Drappaðir m/rauðu st. 36-41
Drappaðir m/brúnu st. 40-46
Verð 6.990
St. 36-41• Hvítir og drapp
Verð 4.990
st. 36-41 • gallabláir
Verð 4.990
St. 36-41 • Drappaðir
Verð 7.990
St. 36-41 • Bláir og grænir m/drapp
Verð 3.990
St. 36-46 • Margir litir
Verð 5.990
converse
ROOTS
Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa
kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Þorvaldur
Halldórsson tónlistarmaður kemur í
heimsókn.
Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim-
ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu
verði. Ýmsar uppákomur.
Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12.
Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir
stundina.
Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10.
Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20.
Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg-
unn. Síðasta skipti fyrir sumarfrí. Í kvöld
mætum við í hverfiskaffihúsinu okkar
Café Mílanó eins og undanfarin ár. Síð-
asti endurminningafundurinn í vetur verð-
ur á heimili djákna, Svölu Sigríðar Thom-
sen, á Furugrund á Kjalarnesi. Gestur
fundarins er Jakob Jakobsson fiskifræð-
ingur. Fjölmennum.
Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45–
7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Síð-
asta samvera á þessu starfsári. Org-
eltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að
stundinni lokinni er málsverður í safn-
aðarheimili.
Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu-
dag kl. 10–12.
Digraneskirkja. Bænastund kl. 12.
Bænaefnum má koma til kirkjuvarða.
Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu-
bergi kl. 10.30.
Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl.
10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam-
verustundir. Ýmiss konar fyrirlestrar. Allt-
af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir
börnin.
Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30.
Kópavogskirkja. Starf með eldri borg-
urum í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar-
heimilinu Borgum.
Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl.
21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og
bæn. Bænarefnum má koma til presta
kirkjunnar og djákna. Hressing í safn-
aðarheimilinu eftir stundina. Ath. í júní
breytist tíminn og verða þessar stundir
þar með kl. 22.
Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung
börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn-
aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið
hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim-
ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17–
18.30.
Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13–
15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi
foreldra með ung börn að koma saman
og eiga skemmtilega samveru í safn-
aðarheimili kirkjunnar.
Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl.
20.
Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel-
komnir.
Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna-
stund kl. 12. Bænaefnum má koma til
prestanna. Eftir stundina er hægt að
kaupa léttan hádegisverð í Safnaðar-
heimili.
Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og
börn kl. 10–12.
Safnaðarstarf
KIRKJUSTARF
MORGUNBLAÐINU hefur borist
eftirfarandi tilkynning frá Flug-
málastjórn, þar sem segir m.a.:
„Vegna frétta í Fréttablaðinu og á
fréttavefnum Vísi þar sem fullyrt er
að Flugmálastjórn hafi gefið út
lofthæfiskírteini á flugvél með
hreyfil sem kominn var yfir leyfileg-
an gangtíma vill Flugmálastjórn
koma eftirfarandi athugasemdum á
framfæri.
Það er rangt að Flugmálastjórn
hafi gefið út lofthæfiskírteini fyrir
flugvélina TF-GTX þegar gangtími
annars hreyfils hennar hafi verið
kominn 142 flugstundir fram yfir
leyfilegan gangtíma. Gangtími
hreyfla milli grannskoðana miðast
ekki eingöngu við uppgefinn tíma
framleiðenda hreyflanna, hvorki hér
á landi né annars staðar. Tekið er
mið af í hvers konar rekstri og við-
haldsumhverfi flugvél hefur verið
áður en viðhaldsáætlun fyrir hana
er samþykkt af Flugmálastjórn. Í
viðhaldsáætlun er tekinn fram leyfi-
legur gangtími hreyfils fram að
næstu grannskoðun. Ekki er óal-
gengt að sá tími sé lengri en sá tími
sem framleiðandi mælir með, allt
eftir reynslu flugrekenda á rekstri
einstakra hreyfla og þess umhverfis
sem hann starfar í. Til að fá loft-
hæfiskírteini þurfa flugrekendur að
leggja fram viðhaldsáætlun til yf-
irferðar og samþykktar hjá Flug-
málastjórn. Umrædd flugvél kom
frá Finnlandi árið 2000 frá flugrek-
anda sem gerði ráð fyrir grannskoð-
un á hreyflinum eftir 1.920 flug-
stundir. Íslensk viðhaldsáætlun
flugvélarinnar miðaði við 1.600 flug-
stundir eins og framleiðendur gefa
upp. Samkvæmt viðurkenndum
reiknireglum gefnum út af Banda-
rísku flugmálastjórninni (FAA)
reiknaði Flugmálastjórn Íslands út
gangtíma fyrir hreyfilinn miðað við
notkun hans í Finnlandi og heim-
ilaði notkun á honum í allt að 1.890
flugstundir. Hreyfillinn átti því 148
flugstundir til næstu grannskoðunar
við útgáfu lofthæfiskírteinis, en var
ekki kominn 142 flugstundir fram
yfir leyfilegan gangtíma eins og full-
yrt hefur verið í fréttum. […]
Engin gögn benda til þess að aðr-
ar flugvélar hafi fengið útgefið
lofthæfiskírteini hjá Flugmálastjórn
þar sem gangtími hreyfla var kom-
inn yfir leyfileg mörk. Viðhaldsáætl-
anir eru eign þeirra sem leggja þær
fram, en þurfa viðurkenningu Flug-
málastjórnar.“
Tilkynning frá
Flugmálastjórn
ÓSKAÐ er eftir tilnefningum vegna
Starfsmenntaverðlaunanna 2002.
Frestur til að senda inn tilnefningar
er til 30. júní nk. og er einungis hægt
að tilnefna á Netinu á sérstökum
eyðublöðum sem eru á slóðinni:
www.mennt.net.
Starfsmenntaráð og Mennt – sam-
starfsvettvangur atvinnulífs og skóla
standa að verðlaununum semeru veitt
þeim aðilum sem eru að vinna fram-
úrskarandi starf í starfsmenntun.
Verðlaunin eru veitt í þremur
flokkum: Flokki fyrirtækja og félaga-
samtaka, flokki skóla og fræðsluaðila
og opnum flokki sem tekur til rann-
sóknaraðila, meistara, einstaklinga og
annarra sem hafa látið til sín taka í
málaflokknum. Frumkvöðlaverðlaun
og samstarfsverkefni geta einnig fall-
ið undir þennan flokk, segir í frétta-
tilkynningu.
Nánari upplýsingar um Starfs-
menntaverðlaunin 2002 eru veittar á
skrifstofu Menntar, Laugavegi 51,
101 Reykjavík.
Starfsmenntaverðlaun
SÍMINN og Kvikmyndir.is stórauka
nú þjónustu við kvikmyndaunnendur
á VIT-inu. Þjónustan gengur út á að
gera upplýsingar um það helsta sem
er að gerast í kvikmyndaheiminum
aðgengilegar í gegnum GSM-síma.
Til að nálgast þjónustuna með VIT-
inu í GSM-símanum er valmyndin
„kvikmyndir.is“ sótt á www.vit.is. Þar
er að finna upplýsingar um nýjar sýn-
ingar kvikmyndahúsanna, sýningar
hvers kvikmyndahúss fyrir sig, sýn-
ingartíma, stutta gagnrýni, topplista
og einnig hvað er væntanlegt á hvíta
tjaldið á næstunni. Notendur geta
einnig gerst áskrifendur að þjónust-
unni og fengið nýjustu upplýsingarn-
ar sendar með reglulegu millibili.
Vefsvæðið Kvikmyndir.is er í eigu
áhugamanna um kvikmyndir, segir í
frétt frá Símanum.
Aukin þjónusta fyrir
kvikmyndaunnendur
STYRKJUM úr Forvarnasjóði hef-
ur verið úthlutað í 7. sinn. Aug-
lýst var eftir umsóknum um styrki
úr Forvarnasjóði í janúar og bár-
ust 130 umsóknir um samanlagt
200 milljónir króna. Úthlutað var
tæpum 44 milljónum króna til 50
verkefna og 8 áfangaheimila. Auk
þess hafa 4,5 milljónir króna verið
teknar frá fyrir samstarfsverkefni
við Samband íslenskra sveitarfé-
laga sem er í undirbúningi. Til-
gangur Forvarnasjóðs er að
stuðla að forvörnum gegn áfengis-
og vímuefnaneyslu. Ráðið hefur
haft að leiðarljósi að styrkja verk-
efni sem lúta að grasrótarstarfi í
sveitarfélögum, meðal foreldra og
ungmenna, innan heilsugæslu,
skóla, leikskóla, tómstundastarfs
og sem varða eftirlit og löggæslu
á sviði vímuvarna.
Styrkjum úthlutað
úr Forvarnasjóði
Morgunblaðið/Kristinn