Morgunblaðið - 30.05.2002, Side 59

Morgunblaðið - 30.05.2002, Side 59
FRÉTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 30. MAÍ 2002 59 Kringlunni, sími 553 2888. Brúðarskór Teg.: LN-022 Stærðir: 36-41 Kr. 11.250 Teg.: LN-016 Stærðir: 36-41 Kr. 11.490 GLÆSILEGT ÚRVAL V O R / S U M A R 2 0 0 2 Kringlunni 8-12, sími 568 6211 Drappaðir m/rauðu st. 36-41 Drappaðir m/brúnu st. 40-46 Verð 6.990 St. 36-41• Hvítir og drapp Verð 4.990 st. 36-41 • gallabláir Verð 4.990 St. 36-41 • Drappaðir Verð 7.990 St. 36-41 • Bláir og grænir m/drapp Verð 3.990 St. 36-46 • Margir litir Verð 5.990 converse ROOTS Áskirkja. Opið hús fyrir alla aldurshópa kl. 14–17 í neðri safnaðarsal. Þorvaldur Halldórsson tónlistarmaður kemur í heimsókn. Dómkirkjan. Opið hús í safnaðarheim- ilinu kl. 14–16. Kaffi og með því á vægu verði. Ýmsar uppákomur. Hallgrímskirkja. Kyrrðarstund kl. 12. Léttur málsverður í safnaðarheimili eftir stundina. Háteigskirkja. Foreldramorgunn kl. 10. Íhugun kl. 19. Taizé-messa kl. 20. Langholtskirkja. Foreldra- og barnamorg- unn. Síðasta skipti fyrir sumarfrí. Í kvöld mætum við í hverfiskaffihúsinu okkar Café Mílanó eins og undanfarin ár. Síð- asti endurminningafundurinn í vetur verð- ur á heimili djákna, Svölu Sigríðar Thom- sen, á Furugrund á Kjalarnesi. Gestur fundarins er Jakob Jakobsson fiskifræð- ingur. Fjölmennum. Laugarneskirkja. Morgunbænir kl. 6.45– 7.05. Kyrrðarstund í hádegi kl. 12. Síð- asta samvera á þessu starfsári. Org- eltónlist í kirkjunni kl. 12–12.10. Að stundinni lokinni er málsverður í safn- aðarheimili. Breiðholtskirkja. Mömmumorgunn föstu- dag kl. 10–12. Digraneskirkja. Bænastund kl. 12. Bænaefnum má koma til kirkjuvarða. Fella- og Hólakirkja. Helgistund í Gerðu- bergi kl. 10.30. Grafarvogskirkja. Foreldramorgnar kl. 10–12. Fræðandi og skemmtilegar sam- verustundir. Ýmiss konar fyrirlestrar. Allt- af heitt á könnunni, djús og brauð fyrir börnin. Hjallakirkja. Kirkjuprakkarar kl. 16.30. Kópavogskirkja. Starf með eldri borg- urum í dag kl. 14.30–16.30 í safnaðar- heimilinu Borgum. Vídalínskirkja. Bæna- og kyrrðarstund kl. 21. Tónlist, ritningarlestur, hugleiðing og bæn. Bænarefnum má koma til presta kirkjunnar og djákna. Hressing í safn- aðarheimilinu eftir stundina. Ath. í júní breytist tíminn og verða þessar stundir þar með kl. 22. Hafnarfjarðarkirkja. Opið hús fyrir ung börn og foreldra þeirra í Vonarhöfn, safn- aðarheimili Strandbergs, kl. 10–12. Opið hús fyrir 8–9 ára börn í safnaðarheim- ilinu Strandbergi, Vonarhöfn, frá kl. 17– 18.30. Víðistaðakirkja. Foreldrastund kl. 13– 15. Kjörið tækifæri fyrir heimavinnandi foreldra með ung börn að koma saman og eiga skemmtilega samveru í safn- aðarheimili kirkjunnar. Þorlákskirkja. Biblíupælingar í kvöld kl. 20. Kletturinn. Kl. 19 alfanámskeið. Allir vel- komnir. Akureyrarkirkja. Kyrrðar- og fyrirbæna- stund kl. 12. Bænaefnum má koma til prestanna. Eftir stundina er hægt að kaupa léttan hádegisverð í Safnaðar- heimili. Glerárkirkja. Opið hús fyrir foreldra og börn kl. 10–12. Safnaðarstarf KIRKJUSTARF MORGUNBLAÐINU hefur borist eftirfarandi tilkynning frá Flug- málastjórn, þar sem segir m.a.: „Vegna frétta í Fréttablaðinu og á fréttavefnum Vísi þar sem fullyrt er að Flugmálastjórn hafi gefið út lofthæfiskírteini á flugvél með hreyfil sem kominn var yfir leyfileg- an gangtíma vill Flugmálastjórn koma eftirfarandi athugasemdum á framfæri. Það er rangt að Flugmálastjórn hafi gefið út lofthæfiskírteini fyrir flugvélina TF-GTX þegar gangtími annars hreyfils hennar hafi verið kominn 142 flugstundir fram yfir leyfilegan gangtíma. Gangtími hreyfla milli grannskoðana miðast ekki eingöngu við uppgefinn tíma framleiðenda hreyflanna, hvorki hér á landi né annars staðar. Tekið er mið af í hvers konar rekstri og við- haldsumhverfi flugvél hefur verið áður en viðhaldsáætlun fyrir hana er samþykkt af Flugmálastjórn. Í viðhaldsáætlun er tekinn fram leyfi- legur gangtími hreyfils fram að næstu grannskoðun. Ekki er óal- gengt að sá tími sé lengri en sá tími sem framleiðandi mælir með, allt eftir reynslu flugrekenda á rekstri einstakra hreyfla og þess umhverfis sem hann starfar í. Til að fá loft- hæfiskírteini þurfa flugrekendur að leggja fram viðhaldsáætlun til yf- irferðar og samþykktar hjá Flug- málastjórn. Umrædd flugvél kom frá Finnlandi árið 2000 frá flugrek- anda sem gerði ráð fyrir grannskoð- un á hreyflinum eftir 1.920 flug- stundir. Íslensk viðhaldsáætlun flugvélarinnar miðaði við 1.600 flug- stundir eins og framleiðendur gefa upp. Samkvæmt viðurkenndum reiknireglum gefnum út af Banda- rísku flugmálastjórninni (FAA) reiknaði Flugmálastjórn Íslands út gangtíma fyrir hreyfilinn miðað við notkun hans í Finnlandi og heim- ilaði notkun á honum í allt að 1.890 flugstundir. Hreyfillinn átti því 148 flugstundir til næstu grannskoðunar við útgáfu lofthæfiskírteinis, en var ekki kominn 142 flugstundir fram yfir leyfilegan gangtíma eins og full- yrt hefur verið í fréttum. […] Engin gögn benda til þess að aðr- ar flugvélar hafi fengið útgefið lofthæfiskírteini hjá Flugmálastjórn þar sem gangtími hreyfla var kom- inn yfir leyfileg mörk. Viðhaldsáætl- anir eru eign þeirra sem leggja þær fram, en þurfa viðurkenningu Flug- málastjórnar.“ Tilkynning frá Flugmálastjórn ÓSKAÐ er eftir tilnefningum vegna Starfsmenntaverðlaunanna 2002. Frestur til að senda inn tilnefningar er til 30. júní nk. og er einungis hægt að tilnefna á Netinu á sérstökum eyðublöðum sem eru á slóðinni: www.mennt.net. Starfsmenntaráð og Mennt – sam- starfsvettvangur atvinnulífs og skóla standa að verðlaununum semeru veitt þeim aðilum sem eru að vinna fram- úrskarandi starf í starfsmenntun. Verðlaunin eru veitt í þremur flokkum: Flokki fyrirtækja og félaga- samtaka, flokki skóla og fræðsluaðila og opnum flokki sem tekur til rann- sóknaraðila, meistara, einstaklinga og annarra sem hafa látið til sín taka í málaflokknum. Frumkvöðlaverðlaun og samstarfsverkefni geta einnig fall- ið undir þennan flokk, segir í frétta- tilkynningu. Nánari upplýsingar um Starfs- menntaverðlaunin 2002 eru veittar á skrifstofu Menntar, Laugavegi 51, 101 Reykjavík. Starfsmenntaverðlaun SÍMINN og Kvikmyndir.is stórauka nú þjónustu við kvikmyndaunnendur á VIT-inu. Þjónustan gengur út á að gera upplýsingar um það helsta sem er að gerast í kvikmyndaheiminum aðgengilegar í gegnum GSM-síma. Til að nálgast þjónustuna með VIT- inu í GSM-símanum er valmyndin „kvikmyndir.is“ sótt á www.vit.is. Þar er að finna upplýsingar um nýjar sýn- ingar kvikmyndahúsanna, sýningar hvers kvikmyndahúss fyrir sig, sýn- ingartíma, stutta gagnrýni, topplista og einnig hvað er væntanlegt á hvíta tjaldið á næstunni. Notendur geta einnig gerst áskrifendur að þjónust- unni og fengið nýjustu upplýsingarn- ar sendar með reglulegu millibili. Vefsvæðið Kvikmyndir.is er í eigu áhugamanna um kvikmyndir, segir í frétt frá Símanum. Aukin þjónusta fyrir kvikmyndaunnendur STYRKJUM úr Forvarnasjóði hef- ur verið úthlutað í 7. sinn. Aug- lýst var eftir umsóknum um styrki úr Forvarnasjóði í janúar og bár- ust 130 umsóknir um samanlagt 200 milljónir króna. Úthlutað var tæpum 44 milljónum króna til 50 verkefna og 8 áfangaheimila. Auk þess hafa 4,5 milljónir króna verið teknar frá fyrir samstarfsverkefni við Samband íslenskra sveitarfé- laga sem er í undirbúningi. Til- gangur Forvarnasjóðs er að stuðla að forvörnum gegn áfengis- og vímuefnaneyslu. Ráðið hefur haft að leiðarljósi að styrkja verk- efni sem lúta að grasrótarstarfi í sveitarfélögum, meðal foreldra og ungmenna, innan heilsugæslu, skóla, leikskóla, tómstundastarfs og sem varða eftirlit og löggæslu á sviði vímuvarna. Styrkjum úthlutað úr Forvarnasjóði Morgunblaðið/Kristinn

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.