Heimilistíminn - 14.10.1976, Page 22
el d i
|WM \ íúskrókur"
Dalapylsa
fljótlegur
matur
Mörgum finnst erfitt að skapa tilbreytni i hversdagsmatnum.
Matseðill flestra fjölskyldna er nokkurn veginn sá sami viku
eftir viku, ár eftir ár, og það getur orðið svolitið þreytandi.
Á undanförnum árum hafa komið á markað hér á landi
margar tegundir af pylsum, sem eru nýstárlegar fyrir okkur.
Ein þeirra er dalapylsan, sem fæst i mörgum matvöruverzl-
unum, og fylgja hér uppskriftir af ýmsum réttum með henni i.
Dalapylsa er handhægur hversdagsmatur, og ef aðaluppistaða
máltiðarinnar að öðru leyti er grænmeti, verður hún ekki of
feit, en okkur íslendingum veitir flestum ekki af að stilla feit-
metisnotkun i hóf. t mesta lagi 35% af þeiinhitaeiningum, sem
við leggjum okkur til munns eiga að vera feitmeti.
Dalapylsa er góð steikt, og þá er sjálfsagt að setja enga feiti á
pönnuna, en það kemur ekki að sök, ef hitinn er vægur.
Pylsupottur torgsalans
400 gr dalapylsa
1 poki af gulrótum
1 lftið blómkálshöfuð
1 paprika
e.t.v. 1 selleristilkur
1 laukur eða 1 púrra
um 3 dl. grænmetissoð, t.d. af teningi
1 matskeið smjör
Þvoið grænmetið og skerið I bita. Látið
meyrna í smjörinu i 5 minútur, en brúniö
ekki. Bætið súputeningi og vatni við og
sjóðiö undir loki i um 15 min. Bætið pylsu-
bitum I og látið sjóöa nokkrar minútur til
viðbótar.
Dalapylsa með broccolikáli
300-400 gr dalapylsa
2 pakkar broccoli (fæst djúpfryst)
4-6 sneiöar magur ostur
vatn eða grænmetissoð
Sjóðið broccoliið, eins og sagt er til um á
pakkanum,eða i grænmetissoöi i um 8
minútur. Helliö burt nokkru af soðinu,
leggið pylsusneiðar yfir káliö, siðan
ostinn og látið hann bráðna viö vægan hita
og hafið lok * nönnunni.
22