Skinfaxi - 01.11.1941, Qupperneq 9
SIÍINFAXI
57
liúsið til hitunar þess. En pípulögn sú, er að ofan getur,
á ekkert skylt við þelta ræsi, enda sýnist hún hafa legið
hærra en hverinn. Virðist engin fjarstæða að gizka á,
að Snorri hafi leitt hveragufu í liús sin til hitunar, eða
annarra nota, því að af frásögn Sturlungu niá ráða, að
Reykholtsskóli.
allt Iiafi leikið í höndum hans, er hann snerti á, „ok
liafði inar beztu forsagnir á öllu því, er gjöra skyldi“.
— Sennilega hafa Finnar eða Bjarmar þá þegar tíðkað
gufuböð, og Snorri haft af því spurnir, ef slík böð hafa
þá annars ekki verið notuð í þann tíma í Noregi eða
annars staðar á Norðurlöndum.
V.
Andlátsorð Snorra Sturlusonar voru i fullu samræmi
við lundarfar hans,lieimsskoðun og lífsreynslu alla.„Eigi
skal höggva“, sagði hann. „Högg þú“, sagði Símon knút-
ur.-----Ennþá er Sturlungaöld, skeggöld og skálmöld
í heimi. Tvær ólíkar heimsskoðanir og tvær fylkingar
manna herast á hanaspjót. Margir trúa því, að annar