Skinfaxi - 01.11.1941, Síða 18
66
SKINFAXI
Æskan er liugsjón skáldsins og veruleiki samanofin.
Ungu mennirnir, sem hlýtt hafa kalli timans, eru djarfir
og skjótráðir og bera meira úr býtum en gömlu garp-
arnir. En
„Vorið engu einu gaf
allar raddir sinar“,
og sumt hefir farið forgörðum, sem áður var æðsti fjár-
sjóður liðinna kynslóða. Þetla má maður manni segja
og þjóð þjóð.
Heðin Brú er gáfaður rithöfundur og glöggskyggn á
söguefni silt, livort sem hann lýsir atburðum, eða fólk-
inu í sinni margbreyttu fábreytni. Eg gef ekki mínum
gamla vini það að sök, þó að heimurinn sé dálitið grárri
l'yrir augum hans, heldur en hann var fyrir 15 árum,
enda stendur nú það él yfir, að varla sér yfir þann vegg.
Bólc þessi er að koma í þýðingu eftir Aðalstein Sig-
mundsson kennara. Er hann einn þeirra örfáu manna,
sem láta sig varða bókmenntir og menningu Færeyinga.
Nýlega kom á prent í þýðingu iians önnur ágæt bók, eftir
færeyska rithöfundinn Jörgen-Frantz Jacobsen: „Far
veröld þinn veg.“
Heilbrig't líf
heitir nýtt tímarit, er Rauði kross íslands gefur út. Fjallar
það um heilbrigðismál á viðtækum grundvelli, er vandað að
öllum frágangi og margar ágætar ritgerðir í heftum þeim,
sem þegar eru komin. Ritstjóri er Gunnlaugur Claessen dr.
med. Ritið kostar kr. 7.00 á ári. Telur Skinfaxi ástæðu til
að henda á þetta rit.