Skinfaxi - 01.11.1941, Qupperneq 41
SIÍINFAXI
89
5. Mól Ums. Dalamanna við Sælingsdalslaug 27. júlí. —
Sláttumót sama sambands var haldið i Laxárdal i ágúst.
Auk héraðsmótanna voru haldin mörg smærri íþróttamót
fyrir eitt eða tvö félög. Skinfaxa er kunnugt um þessi:
1. Að Ivanastöðum í Austur-Landeyjum, keppni milli Austur-
Landeyinga og Eyfellinga.
2. Að Hróarsholti i Flóa, keppni milli Umf. Vöku í Vill-
ingaholtshreppi og Umf. Samhygðar í Gaulverjabæjarlireppi.
3. Mót Umf. Gnúpverjahrepps í Haga.
4. Umf. beggja Hreppanna héldu mót á Álfaskeiði, eins
og venja er.
5. Að Borg i Grímsnesi, Umf. Hvöt í Grímsnesi og Umf.
Biskupstungna.
6. Umf. í Kjósarsýslu héldu íþróttamót i Kjósinni.
7. Umf. í Staðarsveit og Miklaholtshreppi héldu íþrótta-
mót að Hofgörðum.
8. Umf. Snæfell í Stykkishólmi og Umf. Miklaholtshrepps
héldu mót í Stykkishólmi.
Enn fremur er Skinfaxa kunnugt um, að Samband þing-
eyskra umf. hélt iþróttamót i Húsavik 8. júni og almennt hér-
aðsmót að Laugum 10. ágúst, og Ums. Austurlands hélt íþrótta-
mót að Eiðum 3. ágúst. Þessi ungmennasambönd eru ekki
ennþá í U.M.F.Í.
Þrastaskógur.
Jón Þórðarson frá Borgarholti, kennari í Beykjavík, var
skógarvörður þar í sumar, hirti um skóginn, gerði við girð-
ingu og bægði ágangi frá.
Nýtt sambandsfélag.
Umf. Sindri i Höfn í Hornafirði hefir gengið í U.M.F.Í.
Félagsmenn eru 50. Formaður Benedikt Þorsteinsson.
17. júní 1941.
Að kvöldi þess dags var útvarp frá U.M.F.Í. Ræður fluttu
þeir séra Eiríkur .1. Eiríksson sambandsstjóri og Jens Hólm-
geirsson skrifstofustjóri, og lesið var kvæði eftir Guðmund
Inga Iíristjánsson skáld á Ivirkjubóli, langt og snjallt. Sam-
bandsstjórnin hefir látið prenta kvæðið i vandaðri útgáfu, og'
með þvi hina kunnu mynd sambandsins af Jóni Sigurðssyni.
Fæst kvæðið hjá sambandsstjórn. Allir ungmennafélagar ættu
að eiga það.