Andvari - 01.01.1895, Page 10
þar 8 Október 1848. Móðir Hilmars Finsens hét
Dorotliea Cathrine, fædd Bruun, af nafnkenndri og
stórri józkri ætt. Hafði hún fyrst verið gipt Hoskiær
ingeniörkapteini í hernum og áttu þau tvo syni sam-
an. Af börnum þeirra Jóns bæjarfógeta og konu
bans var elztur Hans Valgarður Steingrímur, fædd-
ur 1821, tók embættispróf í guðfræði 1846 og varð
prestur á Sjálandi, dáinn 1894. Næst honum að
aldri var Þórunn, sem giptist dönskum jarðeiganda
að naíni Feddersen, og er dáin fyrir nokkrum
árum.
Þriðji elztur af börnum þeirra var Hilmar.
Hann gekk í latinuskóla í Koiding, útskrifaðist það-
an með fyrstu einkunn 1841, sama árið og frændi
hans Vilhjálmur Finsen, er síðar varð hæstaréttar-
dómari. Eptir það las hann lögfræði við háskólann
í Kaupmannahöfn og tók embættispróf með fyrstu
einkunn í maí 1846, einum degi á undan Vilhjálmi
Finsen. A stúdentsárum sinum hafði Hilmar tekið
mikinn þátt 1 hinu fjöruga stúdentalífi um þær
mundir, þegar frelsishreiíingarnar voru hvað ákaf-
astar á ríkisstjórnarárum Kristjáns konungs 8. og
hafði hann kynnzt mörgum hinna fremstu manna
frjálslynda fiokksins, er þá létu mjög til sin taka í
stúdentafélaginu og síðar urðu frægir menn og mjög
riðnir við stjórnmál Danmerkur, svo sem þeim Orla
Lehmann, Monrad, Iiall og Krieger, er allir urðu
stjórnarherrar hjá Friðriki konungi 7., skáldinu
Carli Ploug o. fl. Var það um þessar mundir áform
hans að gjörast málaflutningsmaður í Kaupmanna-
hötn og flytja mál fyrir hæstarétti; heíir hann ef-
laust jafnframt sett sér það mark, að taka, eptir því
sem f'æri gæfist til, þátt í landstjórnarmálum. Komst
hann í þjónustu hjá yflrrjettarmálflytjanda einum í