Tímarit lögfræðinga - 01.10.1984, Blaðsíða 16
1 Viðaukum 1-8 er fjallað nánar um framkvæmd hinna einstöku
ákvæða sáttmálans og nánari skilgreiningar gefnar á þeim. í Viðauka
9 er alþjóðastofnunum utan Sameinuðu þjóðanna, svo sem Efnahags-
bandalagi Evrópu, heimiluð aðild að sáttmálanum.
Loks skal getið um sérstaka ályktun sem lokafundurinn gerði um
stofnun sérstakrar undirbúningsnefndar sem vinna skal að undirbún-
ingi Hafsbotnsstofnunar og Hafréttardómstólsins þar til sáttmálinn
tekur gildi.
Hér á eftir verður getið um helstu ákvæði sáttmálans og áhersla lögð
á þau atriði sem mestu máli skipta fyrir Island og önnur Norðurlönd.
Er þar ekki síst um að ræða hinar nýju réttarreglur um fiskveiðar inn-
an efnahagslögsögunnar, réttindi yfir landgrunninu innan og utan 200
sjómílna markanna og ákvæðin um skiptingu landgrunnsins milli ríkja.
II. EFNAHAGSLÖGSAGAN.
Hin 200 sjómílna efnahagslögsaga hefur nú hlotið endanlega viður-
kenningu í 55. gr. Hafréttarsáttmálans. Þetta svæði, sem hefst við 12
mílna landhelgismörkin, hefur hlotið sérstaka réttarstöðu sem hvorki
verður jafnað til úthafsins eða landhelginnar, heldur er nýmæli, sui
generis, í rétti hafsins. Strandríkið fær fullveldisrétt til þess að nýta
og stjórna öllum auðlindum hafsins innan efnahagslögsögunnar. Á
móti koma þær skyldur sem því eru á herðar lagðar að nýta auðlindir
svæðisins á sem bestan og skynsamlegastan hátt (optimum utilization)
og heimila jafnframt öðrum ríkjum að nýta þær auðlindir hafsins sem
strandríkið sjálft þarf ekki á að halda, sbr. 62. gr.
1. Réttindi strandríkisins.
Réttindi strandríkisins innan efnahagslögsögunnar eru tvíþætt:
(a) fullveldisréttur að því er tekur til nýtingar, verndar og stjórnunar
lífrænna og ólífrænna auðlinda innan lögsögunnar;
(b) lögsaga að því er tekur til verndunar hafsins og vísindarannsókna
þar.
Hér er gerður greinarmunur á fullveldisrétti og lögsögu strandríkis-
ins. I framkvæmd verður þó ekki séð að mikill aðskilnaður sé á milli
þessara lagaskilgreininga. í báðum tilvikunum er um einkarétt strand-
ríkisins að ræða. önnur ríki geta ekki beitt valdi sínu innan svæðisins
svo í bága brjóti við þessar heimildir. Hins vegar er ekki um það að
ræða að efnahagslögsagan verði hluti af ríkissvæði strandríkisins, svo
sem gildir um landhelgina, eða eignarréttarheimildir skapist. Hér er
70