Tímarit lögfræðinga - 01.10.1984, Blaðsíða 57
1980 25. okt.
1981 28.-29. okt.
1982 2. okt.
1983 22. okt.
1984 22. sept.
Eignarnám og eignarnámsbætur. Skíðaskálinn í Hvera-
dölum. (Tr. 1981, 28—29.)
Breytingar á meðferð einkamála í héraði. Hótel Loftleið-
ir. ,,Námsstefna“ haldin af Dómarafélagi íslands, Lög-
mannafélagi íslands og Lögfræðingafélagi íslands. (Tr.
1982, 38—39 og 91.)
Bótaábyrgð sjálfstætt starfandi háskólamanna. Fólk-
vangur, Kjalarnesi. (Tr. 1983, 108—109.)
Sameignarfélög. Fólkvangur, Kjalarnesi.
Höfundarréttur. Fólkvangur, Kjalarnesi.
Hér er rétt að minna á, að auk Lögfræðingafélags íslands halda lagadeild
Háskóla (slands og Lögmannafélag íslands uppi fræðslu fyrir kandidata í lög-
fræði. Lagadeild hefur haldið einstök námskeið, stundum með erlendum
fyrirlesurum. Ekki er ástæða til að telja þau upp hér, en nefna má sérstak-
lega námskeið fyrir lögfræðinga á Norðurlandi, en hið fyrsta þeirra var haldið
á Akureyri 22. nóvember 1980. Auk sérstakra námskeiða lagadeildar hafa all-
margir lögfræðikandidatar stundað nám í einstökum kjörgreinum ásamt
stúdentum á síðasta námsári, en í 89. gr. háskólareglugerðar (sbr. auglýs.
nr. 78/1979) eru ákvæði um kennslu og leiðbeiningar fyrir kandidata. Um
fræðslustarfsemi Lögmannafélags íslands verður ekki fjallað hér, en hún
hefur verið blómleg á síðustu árum.
Lögfræðingafélagið og Lögmannafélagið eiga ekki aðild að samningi, sem
Háskóii íslands, Bandalag Háskólamanna o.fl. gerðu um endurmenntun árið
1982.
Arnljótur Björnsson
LEIBRÉTTING
f 1. hefti Tímarits lögfræðinga 1984 birtist skýrsla stjórnar Lögfræðingafélags íslands um
starfsárið 1982—1983. Dagsetning í undirfyrirsögn á bls. 41 er röng. Hið rétta er að skýrslan
var flutt á aðalfundi félagsins 14. desember 1983. Beðist er velvirðingar á mistökum þessum.
111