Morgunn - 01.06.1970, Qupperneq 16
10
M 0 R G U N N
ytri maður hrörni, þá endurnýjast dag frá degi vor innri
maður. Þvi að þrenging vor, skammvinn og léttbær, aflar oss
mjög yfirgnæfanlegs dýrðarþunga, þar sem vér horfum ekki
á hið sýnilega, heldur hið ósýnilega, þvi að hið sýnilega er
stundlegt, en hið ósýnilega eilift." Hugsun Páls er sú, að
baráttan í efnisheiminum efli hina andlegu krafta og hæfi-
leika, svo að þegar ellibelgnum er kastað, birtist hinn eigin-
legi maður fullkomnari og fegurri en fyrr, eins og prinsinn
í ævintýrunum eftir að álagahamurinn var brenndur. 1 slik-
um hugmyndum lifir sú innsæja vizka, sem oft stígur langl
fram úr fálmkenndum rannsóknum fræðimannanna. Og hvað
kæmumst vér i rauninni langt í almennri þekkingu, ef vér
ættum ekkert imyndunarafl? Það eru ekki alltaf fræðimenn-
irnir, sem gert hafa mestar og merkastar uppgötvanir, heldur
menn með ríkt ímyndunarafl, menn með innsæisgáfum, spá-
menn!
Það er vel hugsanlcgt, að efnisvisindin eigi eftir að nálgast
hinn andlegri skilning á alheiminum með rannsókn efnis og
orku, en jafnframt verður að fara fram rannsókn sálrænna
fyrirbrigða í miklu víðtækara mæli en enn hefur átt sér stað.
Ef veitt væri fé, þótt ekki svaraði nema litlum hluta þess
fjármagns, sem nú er varið til framleiðslu sprengiefna og
annarra háskalegra morðvopna, til að stunda þessar rann-
sóknir, kynni uppskeran að verða margföld á við það, sem
efnisvísindamenn afreka mannkyninu til blessunar.
Sálarrannsóknafélagið brezka.
Á öldinni scin leið gengu allmargir af færustu og merkustu
efnisvísindamönnum Breta og fleiri þjóða að þvi með miklum
áhuga að rannsaka þetta mál. Býsna margir gerðu það þó í
fyrstu til að afhjúpa það, sem þeir héldu að væri ekki annað
en blekkingar og hégómi. En niðurstaðan kom þeim á óvart.
Flestir eða allir sannfærðust þeir áður en lauk um ódauðleik-
ann og framlíf persónuleikans, En svo rótgróin var þó efnis-