Morgunn - 01.06.1970, Page 39
M 0 R G U N N
33
tölu í öllum tilraununum. Þær reyndust mjög athyglisverðar.
Líkurnar fyrir Jjví að þessi tala kæmi upp var 5 sinnum í
hverri tilraun að meðaltali, ef teningarnir voru fyllilega galla-
lausir. Niðurstaðan reyndist sú, að þessi tala varð að meðal-
tali 5,50 í hverri tilraun. Þetta er að vísu aðeins 0,50 meira
en átti að vera, ef hending ein réði. En þegar tekið er tillit
til þess, að tilraunirnar voru ekki færri en 900, kemur í ljós,
að hin sama tala kemur alls upp 446 sinnum oftar en átt hefði
að vera, ef hending ein réði. Og það er alls ekki lítið, þótt til-
tölulega litlu muni í hverri einstakri tilraun, að því er snertir
frávik frá því, sem búast mátti við. Samkvæmt líkindareikn-
ingi verður þessi munur hýsna mikill og áberandi, Jjegar um
mikinn fjölda tilrauna er að ræða.
Þessar tilraunir sýndu Joegar frá upphafi árangur umfram
það, sem átti að vera, ef hending ein réði. Að vísu urðu frá-
vikin í þessa átt aldrei jafn stórkostleg í nokkurt eitt skipti
eins og þau urðu í ESP tilraununum, þar sem dæmi voru Jjess,
að rétt lausn kæmi 25 sinnurn í röð. Hins vegar virtist, að Jwi
er teningakastið snertir, einhver árangur umfram hendingu
koma í ljós hjá fleiri af þeim, sem prófaðir voru. Það var því
engin J>örf á Jrví að velja menn til þessara tilrauna. Flestir
virtust gæddir einhverjum hæfileika í þessa átt.
Nákvæmlega sömu útreikningum á niðurstöðum var beitt
í þessum tilraunum og gert hafði verið áður í ESP tilraunun-
um, og þetta síðan endurskoðað af fawustu stærðfræðingum. Ef
eitthvert stærðfræðilegt vandamál kom í ljós við Jæssar til-
raunir, en það var mjög sjaldan, var málinu skotið til ráð-
gefandi stærðfræðinga tilraunastofnunar Duke háskólans í
djúpsálarfræði, sem þá var dr. J. A. Greenwood og var sér-
fræðingur í líkindareikningi.
Vandamál Jiessara tilrauna var einkum fólgið i Jwí, að ten-
íngarnir sjálfir gætu verið gallaðir. Undir Jwí var það komið,
að fulltreysta mætti Jjeim árangri umfram það, sem hendingin
sagði til um, að teningarnir væru ógallaðir. Sú hugsun striddi
Pvi á okkur hvað eftir annað, að árangur tilraunanna kynni
að vera ekkert að marka vegna Jiess, að teningarnir sjálfir
3