Morgunn - 01.06.1970, Side 54
48
MORGUNN
kveðju til móður sinnar, tveggja bræðra og frænku. Nöfn þeirra
allra voru greinilega stöfuð svo og heimilisfangið, sem var í
Sandwick í Kent. í skilaboðunum var meðal annars þetta: „Ég
sá logana, en Guð forðaði mér frá dauðastríðinu undir lokin.“
Kitty sendi ættingjunum þegar i stað öll þessi skilaboð. En
áður en henni barst svar frá þeim, fékk hún í hendur vikugam-
alt blað, þar sem sagt var frá slysi, sem orðið hefði í Kensing-
lon. Ung stúlka með því nafni, sem stafað var á fundinum,
hafði lent í bifreiðaslysi, þar sem kviknaði í bílnum, og brann
hún þar til bana áður unnt væri að bjarga henni.
Þegar Kitty sagði fréttakonunni frá þessu, bætti hún þvi
við, og sýnir það mætavel ráðvendni hennar, að henni virtist
hér skorta nokkuð á gilda sönnun vegna þess, að enda þótt
hvorug þeirra hefði séð þetta blað, þegar þær héldu fundinn
og fengu skilaboðin, þá hefði þó greinin um þetta verið komin
út í blaðinu áður en þær héldu fundinn og áður en þeim barst
svarbréf frá móður látnu stúlkunnar.
Þessu er ég þó ekki sammála, segir bókarhöfundurinn, vegna
jiess að konurnar vissu ekkert um slysið þegar þær skráðu
skilaboðin. Og í öðru lagi skýrði fréttakonan frá Jdví, að hún
liefði lesið úrklippuna úr blaðinu, sem er áfast við skýrslu
þeirra um fundinn. Þar stóð að visu nafn stúlkunnar og lýsing
á slysinu, en þar er aðeins tekið fram, að fjölskylda hennar ætti
heima i „námunda við Sandwick.“ Hins vegar kom hið full-
komlega rétta heimilisfang skýrt fram á fundinum.
Þarna var einnig að finna svarbréf frá móður stúlkunnar,
þar sem hún þakkar fyrir bréfið. En hún nefnir þar ekki bræð-
ur né f'ramku stúlkunnar, svo ekki er unnt að fullyrða um,
hvort hún hafi átt tvo bræður, eins og hún gat um i skeyti því,
sem fram kom á fundinum.
Hér er einnig önnur frásögn um það, sem fram kom á ein-
um fundinum hjá konum þessum. Látinn maður sagði til nafns
síns og bað fyrir skilaboð til konu sinnar, sem hann nafngreindi
og sagði eiga heima á stað nokkrum i Suffolk. Á fundinum
varð Kitty fyrir einkennilegum áhrifum, sýndist óróleg og
strauk fingrum i sifellu í gegn um hárið á sér.