Morgunn - 01.06.1970, Page 61
MORGUNN
55
vorift 1922 þangað til í júní 1923. Heilsan batnaði, en hnéð
var alltaf veilt.
Það mun hafa verift í marz þcnnan vetur, aft ég rann lil
a svelli og sneri mig um veika hnéð. Þá sat Snorri Halldórs-
son á Kirkjubæjarklaustri. Hann lét mig þegar leggjast í
rumið og i því varð ég að vera í þrjár vikur, þvi hnéð var
svo bólgið. Svo setti Snorri gips á hnéð, og um vorið komst
óg til Reykjavíkur.
Þegar þangað kom, fór ég til Halldórs Hansens læknis,
Hann lét taka röntgcnmynd af hnénu. Það gerði Gunnlaugur
Claessen. Hann sagði beinið ekki skemmt en brjóskið í liðnum
með miklum ójöfnum. Að þessum upplýsingum fengnum
sprautaði Hansen einhverju lyfi inn í liðinn. Við þessa að-
gerð batnaði mér það mikið, að ég gat verið á fótum gipslaus
°g gengið óhölt. Seinnipart þessa sama sumars fór hnéð aflur
að bólgna og stirðna. Fór ég þá aftur til Hansens læknis. Þá
setti hann gips á liðinn, svo ég gæti ekki beygt hann, og
sldpaði mér að ganga við staf og hækju úti og inni.
Svona haltraði óg allan veturinn. Þegar komið var fram-
'uidir páska, var gipsið klippt í sundur og læknirinn lét mig
reyna að fara að beygja liðinn, sem var næstum þvi orðinn
staíir, því þá var ég búin að vera 25 vikur í gipsinu. Nú leið
"okkur tími. Ég gerði mitt bezta til að liðka hnéð. Það var
talsvert bólgið og óg gat litið beygt það. Á milli æfinganna
varð óg að vera áfram i gipsinu. Mór fundust dagarnir langir,
°g niarga nóttina svaf óg litið.
Hansen læknir var mér mjög góður og skilningsríkur. Ég
Var oft döpur, er ég kom til hans. ftg gat ekki hugsað til þess
oð þurfa jafnvel að vera með hækju alll mitt líf. Hann gerði
s'tt bezta til að telja í mig kjark, t. d. sagði hann, að skurður
gæti komið til greina seinna. Ég vildi þá láta skera strax, en
Hansen sagði, að þá yrði liðurinn staur a'filangt, og hann
msotti ekki eyðileggja svona stóran lið fyrr en biiið væri að
reyna allt annað og þar að auki þyrfti leyfí annars læknis
til aðgerðarinnar. Ef Guðmundur Magnússon prófessor gæfi
leyfi sitt, þá skyldum við athuga þetta,