Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 13
Skýrsla stjórnar 11
2 Aðalstjórn
I aðalstjórn áttu eftirfarandi sæti auk framkvæmdastjórnarmanna:
Reynir Hugason form. RVFÍ Grímur Jónasson form. BVFÍ
Þorsteinn Sigurðsson form. NVFI Pétur Stefánsson form. FRV
Hafliði Loftsson form. VVFÍ frá nóv. 1989 ÞórTómasson form. EVFÍ
Jónas Bjarnason form. LVFI
Aðalstjórnarfundur var haldinn í upphafi starfsárs og var rætt um stefnu og markmið félags-
ins. Formenn fastanefnda voru boðaðir á fundinn m.a. til að samræma sem best störf fasta-
nefnda og deilda félagsins. Það olli framkvæmdastjóm hins vegar óþægindum að formaður
stéttarfélagsins er ekki félagsbundinn hjá VFÍ. Að mati stjórnar er það ótækt að í aðalstjóm fél-
agsins sitji utanfélagsmaður. Sameiginlega var reynt að finna lausn á vandanum með viðræðu-
fundum VFÍ og SV. í framhaldi af þeim fundum var sérstök laganefnd sett á laggimar til að
samlesa og samræma félagslögin, en ósamræmi þar er sennilega orsökin fyrir þessum árekstri.
A aðalstjómarfundum var auk samræmingar- og stefnumála rætt um fjármál félagsins, en
þau hafa tekið stakkaskiptum á síðustu tveimur árum eins og getið verður um síðar. Betra og
nánara samstarf við fagfélög og aðild að deildum félagsins var mikið rætt, en skv. lögum
félagsins er skilyrði fyrir því að geta verið félagi í fagdeild að viðkomandi sé félagi í VFÍ.
Einnig var fjallað um samstarf við Tæknifræðingafélag íslands, kynningarbækling um VFÍ,
reglur um skipun heiðursfélaga, vinnustaðafundi, skoðanakönnun meðal félagsmanna, félaga-
fjölgun o.fl.
3 Skrifstofa VFÍ
Fyrir röskum tveimur árum var endurskipulagning gerð á skrifstofu félagsins. Síðan þá hefur
Arnbjörg Edda Guðbjömsdóttir gegnt stöðu framkvæmdastjóra og notið dyggs stuðnings Guð-
ríðar O. Magnúsdóttur. Aðalfundur 1989 kaus nýjan endurskoðanda, Kristinn Gestsson lög-
giltan endurskoðanda. Þessi þrjú hafa unnið kappsamlega að því að koma reglu á rekstur skrif-
stofunnar og félagsins. Bókhaldslyklar voru endurskilgreindir og bókhald allt endurskipulagt.
Bókhald hefur verið fært jafnóðum þannig að unnt er að fá stöðu félagssjóðs og hússjóðs eftir
hver mánaðamót. Þetta hefur gert allt eftirlit með stöðu fjármála mun auðveldara. Útistandandi
skuldir eru greiddar á gjalddögum og misfærslur eldri tíðar leiðréttar og voru þær næstum
horfnar í upphafi starfsárs-
ins. Innheimtumálum er
sinnt jafnt og þétt. Til marks
um það voru útistandandi
árgjöld um áramótin 1988/
89 um 5,6 m.kr. Um ára-
mótin 1989/90 námu úti-
standandi árgjöld 2,9 m.kr.
en um áramótin síðustu
voru útistandandi árgjöld
um 2,5 m.kr. Innheimt fél-
ugsgjöld á árinu fóru yfir
90% sem er mjög gott. Eins-
Mynd 2 Hús Verkfrceðineafélags Islands, Engjateigi 9.