Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 37
Skýrsla stjórnar 35
16 Vélaverkfræðideild VFÍ starfsárið 1990 - 1991
Stjóm vélaverkfræðideildar skipa:
Hafliði Loftsson, formaður Helgi Jóhannesson
Sigurður Brynjólfsson
Stjórnarfundir hafa verið haldnir 5 sinnum á starfsárinu.
16.1 „Vísindaferöir"
„Vísindaferðir" hafa verið þrjár á starfsárinu.
Grundartangaverksmiðja 12. okt. 1990. í þessari ferð tóku þátt 11 verkfræðingar og var
ferðin í alla staði mjög fróðleg og ánægjuleg. Verksmiðjan var skoðuð í fylgd Sigurðar Áma
Sigurðssonar eðlisfræðings og á eftir voru umræður um starfsemina almennt. Þar var koniið
inn á: Framleiðslustjórnun, vélvæðingu, viðhald vélbúnaðar, þekkingarkerfi, sérstök þróunar-
verkefni hjá Islenska jámblendifélaginu hf. og gildi þeirra.
Iðntæknistofnun 8. nóv. 1990. Þessi skoðunarferð sem auglýst var í fréttablaði 1. nóv.
1990 var illa sótt eða tveir menn utan stjórnarmanns. Við íhugum að endurtaka þess vísindaferð
seinna. Það sem átti að skoða á Iðntæknistofnun var HAT/FAT (CAD/CAM) kerfi Iðntækni-
stofnunar, Háskóla íslands og Tækniskólans. Einnig var áætluð kynning á rafeindasmásjá
stofnunarinnar.
„Julefrokost“ á Nesjavöllum 6. des. 1990. í þessa ferð konru 18 verkfræðingar. Farið var
í rútu upp með „Nesjavallaæð" við vafasamar aðstæður í snjó og ófærð. Virkjunin var skoðuð í
góðri fylgd Árna Gunnarssonar yfirverkfræðings hjá Hitaveitu Reykjavíkur. Borðaður var
„julefrokost" á Nesjavöllum og síðan var „gamli tíminn" skoðaður þ.e. dælustöð við holu 13 í
Mosfellsbæ. Þessi ferð var hin ánægjulegasta og samdóma álit manna að fleiri ferðir þyrfti af
þessu tagi til að þjappa deildinni saman, auka þekkingu manna og kynningu þeirra á ntilli.
16.2 Einkaleyfismál
Sú nýbreytni var tekin upp að bjóða til kynningarkvölds, þar senr saman færu notalegur kvöld-
verður, kynning og umræður um eitthvert ákveðið málefni.
Þann 12. apríl 1991 var boðað var til kynningarkvölds í Verkfræðingahúsinu um stöðu
einkaleyfismála hér á landi. Gunnar Örn Harðarson var frummælandi á fundinum, en hann
hefur undanfarin ár starfað við einkaleyfismál. Fundurinn var frekar illa sóttur en tókst í alla
aðra staði vel.
16.3 Næsta starfsár
Á næsta starfsári eru m.a. fyrirhugaðar ferðir í ísal og Stálbræðsluna, ásamt stuttum fræðslu-
fundum við notalegar aðstæður í húsi Verkfræðingafélagsins. Þessir fundir verða að kvöldlagi
og munu tengjast borðhaldi og væntanlega líflegum umræðum um tema dagsins að borðhaldi
loknu.
Hafliði Loftsson (sign.)