Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 38
36
Arbók VFI 1990/91
17 Byggingarverkfræðideild VFÍ, mars 1990 - júní 1991
17.1 Stjórn
Stjóm Byggingarverkfræðideildar VFÍ var árið 1990-1991 skipuð eftirfarandi:
Grímur Jónasson, formaður Gísli H. Guðmundsson, gjaldkeri
Gautur Þorsteinsson, varaformaður Gissur Pálsson, ritari
Þeir Grímur og Gísli gengu úr stjórn á aðalfundi 1991 en Gautur og Gissur sátu áfram ásamt
Ara Birni Friðrikssyni og Friðrik H. Gíslasyni sem kosnir voru í stjórn á aðalfundinum.
Aðalmál stjómar er að skipuleggja og halda félagsfundi.
Á tímabilinu voru haldnir sex stjórnarfundir og ellefu félagsfundir að meðtöldum aðalfundi.
Stjórn BVFÍ fékk ýmis mál til umfjöllunar. Meðal erinda sem bárust var ósk frá afmælis-
nefnd VFÍ um að BVFÍ stæði fyrir hálfs dags ráðstefnu á afmælisárinu 1992 en þá verður VFÍ
80 ára. Samþykkt var að stefna að ráðstefnu um samgöngur og samgöngumannvirki í nútíð og
framtíð. Æskilegur tími er í okt. 1992.
Einnig hefur borist ósk frá Endurmenntunamefnd Háskóla Islands um nánara samstarf við
BVFÍ um val á námskeiðum. Tel ég rétt að félagsmenn láti í ljós álit sitt á því hvað þeir vilja
sjá á dagskrá Endurmenntunarnefndar.
Orðanefnd byggingarverkfræðinga hefur starfað ötullega eins og undafarin ár undir styrkri
stjóm Einar B. Pálssonar. Stjórnir koma og fara og starfsemi félagsins gengur í bylgjum en
orðanefndin starfar að því er virðist ætíð jafn vel og heldur sínu striki hvað öðru líður. Verður
starf hennar seint fullþakkað.
Gott samstarf hefur verið milli Jarðtæknifélags íslands og Byggingaverkfræðideildar VFÍ
og hafa nokkrir fundir verið haldnir sameiginlega hjá þessum tveimur félögum. Undirbúningur
fyrir þá fundi hefur verið í höndum Birgis Jónssonar formanns Jarðtæknifélagsins og kann
stjórn BVFÍ honum þakkir fyrir.
17.2 Félagsfundir
Fundarsókn var afar misjöfn. Stjórn félagsins tók þá stefnu að láta nægja að dreifa tilkynn-
ingum til tengiliða auk birtingar í Fréttabréfi VFÍ. Ekki voru félagsmenn hvattir á annan skipu-
lagðan hátt til mætingar á fundi. Eftirtaldir félagsfundir voru haldnir:
1. Eyjabakkastífla, F’ljótsdalsvirkjun (mars 1990). Sameiginlegur fundur BVFI og Jarð-
tæknifélags Islands. Fyrirlesari var Jón Skúlason á Almennu verkfræðistofunni ogfjallaði hann
um samanburð á jarðstíflu, asfaltkjarnastíflu og steyptri stíflu (RCC). Um 30 manns mættu.
2. Bergþéttun undir stíflur, samanburður á niðurstöðum frá stíflum á Islandi (apríl
1990). Sameiginlegur fundur BVFÍ og Jarðtæknifélags íslands og byggingatæknifræðinga í
TFI. Fyrirlesari var Jón Reynir Sigurvinsson, mannvirkjajarðfræðingur.
3. Bergþéttun í jarðgöngum Stokkhólmsborgar (maí 1990) Sameiginlegur fundur BVFÍ
og Jarðtæknifélags íslands. Fyrirlesari var Steinar Farestveit framkvæmdastjóri byggingar-
deildar Stokkhólmsborgar.
4. Aðalfundur félagsins, haldinn í mötuneyti Landsvirkjunar við Blönduvirkjun þann 19.
maí 1990. Áður hafði Landsvirkjun boðið fundarmönnum í hádegismat. Eftir fundinn var
Blönduvirkjun skoðuð. Leiðsögumenn voru Sveinn Þorgrímsson frá Landsvirkjun, Ólafur
Gíslason frá Fossvirki og Brynjar Brjánsson frá Hagvirki. Fyrst var stöðvarhúsið skoðað, en
síðan var fundarmönnum fylgt um vinnusvæði verktakanna. Að skoðun lokinni bauð Hagvirki
í kaffi og kökur. Fundinn sóttu um 15 manns.