Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 58
56 Arbók VFI 1990/91
Guðmundur
Hermannsson
Guðmundur Halldór
Kjœrnested
Guðmundur Hermannsson (V 1991) f. 15. ágúst 1960 á Þingeyri.
Foreldrar Hermann Guðmundsson vélstjóri f. 20. janúar 1922 að Fremri
Hjarðardal í Dýrafirði og Áslaug Kristjánsdóttir verkakona f. 4. janúar
1926 að Höfn í Dýrafirði. Foreldrar föður Guðmundur Hermannsson
kennari í Fremri Hjarðardal og Guðrún Gísladóttirhúsfreyja. Foreldrar
ntóður Kristján Jakobsson bóndi á Höfn í Dýrafirði og Guðrún Petrína
Kristjánsdóttir húsfreyja.
Raungreinadeildarpróf frá Tækniskóla íslands, BS í véltæknifræði
frá Odense Teknikum 1988 og Civ.ing. próf í iðnaðarverkfræði á sjáv-
arútvegssviði fráÁlaborgarháskóla 1990.
Störf: Iðnráðgjafi Vestfjarða. Hjá ísal frá okt. 1991.
Guðmundur Halldór Kjærnested(V 1990) f. 1 l.ágúst 1964íReykjavík.
Foreldrar Sverrir Kjærnested prentari og prentsmiðjustjóri f. 1. ágúst
1930 í Reykjavík og Margrét Bjarney Stefánsdóttir saumakonaf. 15. júní
1931 í Vestmannaeyjum. Foreldrar föður Halldór Kjærnested bryti og
Margrét Kjæmested. Foreldrar móður Stefán Valdason, verkamaður og
Guðmunda Bjarnadóttir.
Stúdent frá Menntaskólanum við Sund 1984, próf í rafmagns-
verkfræði frá Háskóla íslands 1988 og M.Sc. frá Danmarks Tekniske
Höjskole 1990.
Starf: Verkfræðingur hjáíslenskajárnblendifélaginu.Grundartanga.
Maki: Steinunn Björg Sigurjónsdóttir meinatæknir f. 16. janúar
1964 á Akureyri. Foreldrar dr. Sigurjón Norberg Ólafsson efnafræð-
ingur, dósent við Háskóla íslands f. 17. apríl 1943 og Aðalbjörg Krist-
jánsdóttir bankastarfsmaður f. 27. nóvember 1945 á Þórshöfn. For-
eldrar föður Ólafur Ólafsson kennari og Sigurbjörg Guðjónsdóttir hús-
móðir. Foreldrar móður Kristján Halldórsson trésmiður og Steinunn
Guðmundsdóttir.
Börn: Sigurjón Norberg Kjærnested f. 3. nóvember 1985 í Reykja-
vík og Silvá Kjæmested f. 20. mars 1989 í Kaupmannahöfn.
Guðrún Rögnvaldardóttir (V 1986) f. 5. júní 1958 á Sauðárkróki.
Faðir Rögnvaldur Gíslason, aðalbókari hjá sýslumanni og bæjarfógeta
Skagf. f. 16. des. 1923 f Eyhildarholti, Hegranesi, Magnússonar, bónda
þar og konu hans Stefaníu Guðrúnar Sveinsdóttur. Móðir Sigríður
Jónsdóttir, verslunarmaður, f. 30. nóv. 1928 í Djúpadal, Blönduhlíð,
Skagafirði, Eiríkssonar bónda þar og konu hans Nönnu Þorbergsdóttur.
Stúdentfrá Menntaskólanum á Akureyri 1978, rafmagnsverkfræðipróf
frá Háskóla íslands 1983 og Dipl.Ing. frá Technische Hochschule
Karlsruhe 1986.
Sérfræðingur við Upplýsinga & merkjafræðistofu HÍ 1987-1988.