Árbók VFÍ - 01.01.1992, Page 68
66 Arbók VFI 1990/91
Sigurður Ingi Geirsson
Sigurður Ólafsson
Sigurgeirssonar pípulagningameistara (látinn) og Ingveldar Láru Krist-
jánsdóttur húsmóður.
Stúdent frá Menntaskólanum í Hamrahlíð 1976, byggingartækni-
fræðingur frá Tækniskóla íslands 1980 og byggingarverkfræðipróf
(civ.ing.) frá Tækniháskólanum í Lundi 1990.
Störf: Tæknifr. hjá fstak hf. 1981-82, tæknifr. hjá BYKO hf. 1983-
84, tæknifr. hjá Asplunds Bygg Örebro í Svíþjóð 1985 og tæknifræð-
ingur hjá HSB Örebro 1986-87, verkfræðingur hjá verkfræðistofu
Centerlöf & Holmberg Lundi Svíþjóð 1989-91.
Starfar nú hjá Verkfræðistofu Stefáns Ólafssonar.
Maki Katrín Davíðsdóttir, barnalæknir í Lundi f. 8. febrúar 1953,
Guðmundssonar fyrrum bónda f. 30. des. 1914, Brynjólfssonar bónda
í Miðdal í Kjós og Guðbjargar Jónsdóttur húsmóður í Miðdal, bæði
látin. Móðir Rósa Eiríksdóttir, húsfreyja f. 19. janúar 1920, Péturs-
sonar og Sigríðar Brynjólfsdóttur sem bæði eru látin.
Börn: Sigurþór Ingi f. 25. febr. 1984 í Reykjavík og Davíð Þór f.
29. maí 1989 íLundi.
Veitt innganga í VFÍ á stjórnarfundi 23. okt. 1990.
Sigurður Ólafsson (V 1985) f. 23. maí 1960 í Kópavogi. Foreldrar
Jóhann Ólafur Sigfússon vélfræðingur f. 12. ágúsl 1933 í Reykjavík og
kona hans Ingunn Erla Klemenzdóttir h júkrunaifræðingur f. 22. nóventber
1929. Foreldrarföður Sigfús Magnússon netagerðarmeistari og skipstjóri
og Guðrún Halldórsdóttir, í Reykjavík. Foreldrar móður Klemenz
Vilhjálmsson bóndi á Brekku í Svarfaðardal og Sólveig Júlíusdóttir.
Stúdent frá Menntaskólanum í Reykjavík 1980, vélaverkfræðipróf
frá Háskóla íslands 1984 og M.Sc. í vélaverkfræðifráDanmarksTekn-
iske Höjskole 1986.
Störf: Rannsóknarverkfr. við DTH 1986-1987, verkfræðingur á
Verkfræðistofu Guðmundar og Kristjáns hf. frá 1987.
Sigurður Sigurðsson (V 1991) f. 16. mars 1945 í Reykjavík. Foreldrar
Sigurður Friðrik Jónsson búfræðingur og lögregluþjónn í Reykjavík f.
12. október 1914 á Grund í Svarfaðardal og Magnhildur Sigurðardóttir
húsfreyja f. 4. desember 1922 í Efstadal í Laugardal, Árnessýslu.
Foreldrar föður Jón Þorsteinsson bóndi á Blakksgerði (Syðri-Grund)
Svarfaðardal og Sigrún Sigurðardóttir. Foreldrar móður Sigurður
Sigurðsson bóndi í Efstadal og Jórunn Ásmundsdóttir húsfreyja.
Raungreinadeildarpróf frá Tækniskóla íslands 1971, byggingar-